Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Jöklar.
11
1892 hinn 12. marz tóku menn eftir þvi á Skaftafelli, efsta
bæ i Oræfum, að Skeiðará var farin að hlaupa og ógurlega
jökulfýlu lagði um sveitina, sem barst um alt Suðurland, alt
til Reykjavikur; þann dag og hinn næsta óx vatnsmegnið
á sandinum, þar til hann var allur orðinn að einu flóði, en
aðfaranótt hins 14. marz heyrðust miklir skruðningar, brestir
og dynkir, þá hljóp jökullinn sjálfur, og niður allan sand
láu næsta morgun jakahrannir til sjóar; stærstu hrannirnar
voru austast og vestast, höfðu borist niður farveg Skeiðarár
og farveg Núpsvatna, alt vestur undir Mariubakka i
Fljóts-hverfi; milli aðalfljótanna voru margar aðrar jakarásir, meðal
annars fimm fyrir austan miðjan sand. Jakahrönnin fram
með Skeiðará var mila á breidd og 3—4 milur á lengd,
en jakarnir 50—60 feta háir; voru þessar jakabreiður eins
og hrikaleg hamrabelti, full af gjám og sprungum og svört
af aur og grjóti. Ishrannirnar við Núpsvötn voru hálf
mila á breidd og þrjár mílur á lengd, en jakarnir nokkuð
lægri. Leðjulagið, sem áin hafði borið ofan á sandinn, var
óviða minna en tveggja álna þykt, en sumstaðar mikið
meira.1) Arið 189 7 kom hlaup úr Skeiðarárjökli miðjum,
hinn 13. janúar, en það var mikið minna, ishrönnin V2—2k
mila á breidcl, en jakarnir margir 60—80 fet á hæð. 1899
kom litið hlaup niður Súlu og Núpsvötn, en 1903 var
aftur mikið hlaup, þá byrjaði eldgos i Vatnajökli norður af
Grænafjalli hinn 28. mai, en hinn 25. s. m. hafði Skeiðará
látið á sór bera og óx óðum, en hafði verið algerlega þur
um vorið og allan siðari hluta vetrar. Svo kom jökulhlaupið
um leið og eldgosið byrjaði og var mjög mikið; vatnið
spýttist upp úr jökulsprungunum í háum súlum og bæirnir
á Skaftafelli og Svinafelli léku á reiðiskjálfi, en dynkirnir
og smellirnir heyrðust alt austur i Hornafjörð. Jakarnir i
jökulhrönnunum, sem bárust út á sandinn, voru víða 50—60
feta háir, en ofan á þá tildraðist nýr ruðningur af
isstykkj-um 25—35 feta þykkum. f*egar hlaupið rann út á sjó, varð
mikill bylgjugangur, og i Vik í Mýrdal kom svo mikill
’) ísafold 1892. bls. 130, 133-134, 227.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>