- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
10

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

10

Jöklar.

hljóp Skeiðará ákaflega og gerði mikinn skaða á engjum
manna og mellöndum i Oræfum og færði jökulhrannirnar
niður að Ingólfshöfða með ógurlegum vatnagangi. Pessu
hlaupi fylgdi fjarskaleg jökulfýla, svo menn sögðu fugla
hafa drepist af henni hrönnum saman! Eftir hlaupið
mynd-uðnst fjöldamörg djúp ker, þar sem jakarnir bráðnuðu og
drukknaði maður í einu kerinu, en öðrum var bjargað, sem
var hætt kominn. Hlaupið reif upp jarðveg, möl og sand
og færði með sér birkilurka og ymsa forna búshluti, sem
menn ætluðu að væri úr eyðibæjum, sem gömul hlaup hefði
grandað og þakið auri.1) 1867 voru eldgos mikil i
Yatna-jökli, þá hljóp Skeiðará 27. ágúst, um leið og gosið byrjaði.
Yatnsflóðið fór þá um allan Skeiðarársand og var mjög
stórkostlegt, leit út fyrir að um það hefði mátt sigla
haf-færu skipi, þá skemdust mjög engjar i Oræfum, gamalt
skipsflak og mikinn rekavið tók út á sjó, jakar dreifðust
um allan sandinn og lágu eins og hafís i lirönnum um allar
fjörur; hlaupin héldust i 13 daga.2) 18 73 var aftur eldgos
i Yatnajökli, með sömu grein, og hlaup úr Skeiðarárjökli;
fyrst hljóp Skeiðará og svo Súla að kvöldi sama dags, var
allur Skeiðarársandur þá eitt haf og barst leir og sandur á
engjar manna i Fljótshverfi. Menn, er fóru um sandinn
eftir hlaupið, sáu ofarlega vatnsstrók beinan upp úr
sandin-um, eins og hver, og brauzt þar siðar fram jökulkvisl, sem
rami um tíma.3) 1883 var enn gos í Yatnajökli og óx
Skeiðará þá ákaflega, án þess snögt hlaup kæmi i hana. A
Skaftafelli sást vottur af vexti í Skeiðará 13. marz, og svo
var áin jafnt og stöðugt að vaxa til hins 20. s. m , en næsta
dag var vöxturinn orðinn svo mikill, að frá Sandfelli i
Oræfum sáust eigi nema tvær sandeyrar upp úr vatninu, alt
vestur i Lómagnúp. Morguninn eftir (hinn 22.) sást
gos-mökkur mikill í Yatnajökli, beint norður af Öræfasveit.4)

’) Norðanfari I, bls. 63. tjóðólfur XIII. bls. 119—20; XIV. bls. 18.

■) Norðanfari VI. 1867. bls. 74.

’•) Noröanfari XII. bls. 109. Göngu-Hrólfur I. bls. 64.

♦) Suðri I. bls. 43.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0022.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free