- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
17

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Jöklar.

17

sköflum hér og hvar; dalverpi eru hvergi fyr en draga fer
niður að fjörðunum, þar verða fláir dalbotnar og hr}Tggir
á milli, sem ganga út ánesin. Fyrir sunnan Glámu er
fing-mannaheiði en fyrir austan hana Skálmardalsheiði.

Dranii’ajÖkull er stærri en Gláma og ganga þaðan
margir skriðjöklar bæði austur og vestur, nærri niður að
sjó. Drangajökull er rúmar 6 ferh. mílur á stærð og 2837
fet á hæð. A hinum eldri uppdráttum er jökullinn gerður
altof stór. i raun og veru nær hann ekki nema suður að 66°
2’ n. br., en þar fyrir sunnan taka við margar fannir, sem
eru lausar við jökulinn, og flestar þeirra þiðna aldrei að
fullu. Aðaljökullinn er aflöng hjarnbunga og standa upp
úr henni miðri sker eða tindar tveir, Hrollaugsborg og
Hljóðabunga, milli þeirra er lægð í jökulinn, sem skiftir
honum i syðri og nyrðri bungu. Frá Hrollaugsborg
geng-ur hryggur á jöklinum út að Miðmundahorni, á hálsinum
fyrir norðan botn Bjarnarfjarðar, hann er oftast þakinn snjó,
en kemur fram i hitasumrum. Milli þessa hryggs og
tind-anna á miðjöklinum er breið jökulhvilft og úr henni
geng-ur skriðjökull niður i Reykjarfjörð nyrðri.1) Drangajökull
veitir frá sér miklu vatni og spretta upp í honum ýmsar
vatnsmiklar ár, þó stuttar séu, mest er að vestanverðu Selá,
að austanverðu Hvalsá Sjö skriðjöklar ganga niður úr
Drangajökli svo kunnugt sé.

Syðsti skriðjökulstanginn úr Drangajökli að austanverðu
gengur niður undir Bjarnarfjörð og liggur neðsti endi
hans nærri 800 fet yfir sjó. Stærstur er skriðjökullinn i
íteykj arfirði nyrðri, hann nær svo langt niður, að endi
hans 1886 var 96 fet yfir flæðarmáli. Rúman þriðjung
mílu frá sjó liggur boginn jökulgarður yfir dalinn þveran,
hérumbil 800 faðma frá jökulsporðinum (1886), og brýzt áin
að sunnanverðu gegnum þessar öldur, heitir hún
Reykjar-fjarðarós, er allmikil og kolmórauð af jökulgormi. viðsjál
yfirferðar vegna sandbleytu. Milli jökulaldna og jökulenda

’) Hans Frisak gekk fyrstur af fræðimönnum upp á Drangajökul
1809, en C. W. Shepherd kom }>ar 1862.

3

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0029.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free