Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
18
Jöklar.
eru sléttir melar með núnu grjóti og smágrjóthrúgum hér
og hvar. og sumstaðar djúp vatnsaugu innan um grjóthrúg-
urnar. far sem jökultanginn kemur niður i dalinn, mun hanu
vera 5—800 faðmar á breidd, en neðsti oddi hans er um
300 faðmar að þvermáli. Jökullinn heíir styzt töluvert á
seinni hluta 19. aldar; 1886 voru 800 faðmar frá jökulsporði
að öldunum, en 1846 náði jökullinn alveg fram á öldur og
ók þeim undan sér. fanst þá mikil jökulfyla og ósinn var
ófær alt sumarið; litlu seinna fór jökultanginn að minka,
en fór hægt i fyrstu, og 8—9 árum seinna var ekki meira
bil en 8—10 faðmar milli jökulrandar og grjótgarðsins, en
siðan hefir jökullinn farið siminkandi ár frá ári. Skriðjök-
ullinn heíir fyrrum verið miklu þykkri, við jökulendann,
sem nú er, heíir þyktin verið 2—-300 fet; þetta sést á jökla-
grjóti og núnum björgum, sem orðið hafa eftir i miðjum
hliðum á báða vegu. Ain kemur kolmórauð undan hvelf-
ingu i jökulendanum. hún er mjög köld og ber með sér
mikinn leir. Aður á timum hefir jökullinn þó verið enn
stvttri, á 17. öld var bær nærri þeim bletti. þar sem jökul-
sporðurinn er nú, og hét hann Knittilsstaðir, sáust rústir
þess bæjar enn 1710, en siðar hefir áin tekið þær. Þriðji
skriðjökullinn gengur niður i P aral á tursf j ö rð, hann
gengur þó eigi nema rétt niður i dalbotninn og mun endi
hans vera tæp 400 fet yfir sjó. frá honum fellur jökulá skol-
mórauð, á árunum 1860—80 styttist jökull þessi lika um
t
nokkur hundruð faðma. I Furufirði gengur jökulálma
niður undir Skorarheiði, á að gizka 600 fet yfir sjó.
Að norðvestan gengur allstór og reglulega lagaður
skrið-jökull niður i Leirufjörð, endi hans er aðeins 120 fet
vfir sjó og milli jöknls og fjöru eru sléttir sandar og leirur
með lágum grjóthrúgum og öldugörðum. Yið syðri hliðina
er sýling í jökulröndina með þverhnvptum ishömrum. sem
myndaðist við jökulhrun sumarið 1883, þaðan rennur
all-mikil jökulkvísl norður með jökulröndinni, og renna i liana
margir smáir jökullækir úr jökulportum, siðan kvislast
aðal-áin um leirurnar i dalnum. Fram með jöklinum var 1887
lítil grjótrönd og litlu neðar fjórir öldugarðar 3rfir dalinn
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>