- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
26

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

26 Jöklar.

i

F. W. Howell, sem gekk með tveim öðrum
Englending-um 1899 yíir Baldjökul niður i fjófadali.1) en ekki ritaði
hann neina lýsing á jöklinum. Tiltölulega mjög fáar ár
spretta upp i Langjökli sjálfum, Hvitá syðri og Farið koma
úr vötnum við jökulinn, Fúlakvisl rennur i Hvitárvatn;
Geitlandsár koma í kvislum undan Geitlandsjökli og nokkrir
litlir lækir renna úr Baldjökli i Norðlingafljót. Eftir stærð
jökulsins er þetta mjög litið afrensli, en liklega hverfur
mik-ill hluti jökulvatnsins i hraun, grágrýti og gljúpar
móbergs-klappir, en kemur svo fram neðar og er þá orðið að tæru
bergvatni. Vötnin á Arnarvatnsheiði, Þingvallavatn og
fleiri vötn hafa að öllum líkindum neðanjarðar aðrensli úr
Langjökli.

Norður af Geitlandsjökli er Eiríksjökull, sérstakt fjall,
5730 fet á hæð, og skilur Flosaskarð hann frá aðaljökli.

Grossmann,

62. mynd. Eiríksjökull.

Eiríksjökull er stórskorinn og tignarlegur, luktur
þverhnýpt-um hamrabeltum alt i kring, en fannhvit jökulkúpa ofaná,
mænir þessi jökulkastali yfir öll fjöll og jökla í grend.
Aðal-efni fjallsins er móberg, en grágrýti i hömrunum ofaná og
lik-lega í bungunniundir jökulhvelinu.
NorðvesturhornEiríksjök-uls er lægra en aðalfjallið og á þvi er ekki jökull, en brött
er hliðin þar niður að Hallmundarhrauni og Eiriksgnýpa2)
utan í hlíðinni; austar á fjallinu er aðalbungan, sem

’) Geographical Joumal. Londou 1899, XIV, bls. 441.
*) íslenzkar Pjóðsögur U, bls. 808.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0038.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free