- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
36

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

36

Jöklar.

sandinum og heita Leirá. Jökulkvisl sprettur upp i
Merki-gili, það er margkvislað gljúfur, sem gengur inn i
móbergs-fjöll i jökulröndinni, en f^^rir norðan þá hálsa gengur niður
stór jökull, sem nær norður að Oldufelli. þaðan falla
jökul-lækir i Jökulkvisl, en hún rennur i Hólmsá. Norðurröndin
á Mvrdalsjökli er einn samanhangandi, geysistór skriðjökull,
sem hallar frá hæstu bungunum upp af Kötlu og nær frá
Oldufelli alt vestur i Emstrur. svo lengdin á jökulröndinni
er liklega 2—3 milur. Par eru svartar aurrákir langt upp
á jökul, bogadregnar, jafnhliða jökulröndinni; halli jökulsins
er litill, svo hann hreyhst vist ekki mikið, en þó er hann
mjög dökkur af aur og grjóti að neðan. Jökulröndin
ligg-ur 1800—2200 fet, yfir sjó. en snælinan mun á þessu
svæði vera nærri 3500 fet yfir sævarmáli. A
Goðalands-jökli ná háar snjólausar hamrahliðar langt upp i jökul og
þar er aðaljökullinn einna hæstur, en þó liklega
nokk-uð lægri en Eyjafjallajökull.1)

Norður af Goðalandsjökli og austur af Heklu er hár og
sundurskorinn fjallaklasi þakinn jökli. það er Torfajökull,
hann mun vera tvær ferh.mílur að flatarmáli, nálægt þrem
milum á lengd og mila á breidd; hæðin er á að gizka 4500
fet, snælínan 3000 fet. Torfajökull getur i raun réttri varla
talist samanhangandi jökull, þar eru hjarnfannir og
fann-bungur i lautum milli klettahryggja og tinda, sem skifta
jöklinum sundur á niarga vegu. svo þar er ekki óslitin
fann-breiða einsog á flestum öðrum jöklum. Sjálft er fjallið, sem
jökulfannirnar hvíla á, alt sundurskorið af lægðum og
skörð-um. er ganga frá norðri til suðurs, en djúpar dældir, frá
vestri til austurs, skera lika marga hryggi frá aðalfjallinu;
i kringum Torfajökul eru ótal undirborgir og urmull af
tindum, sem ilt er að botna i. Aðalefni fjallanna undir
Torfajökli er liparit, kemur sú bergtegund alstaðar fram i
hlíðum og gljúfrum, oft sundursoðin af hveragufum, en
mó-berg og þussaberg er sumstaðar ofaná; hvergi annarstaðar

l) VV. L. Watts telur hina hæstu bungu Mýrdalsjökuls 5750
fet á hæð.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0048.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free