Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Tindfjallajökull.
37
er líparít til muna undir jöklum nema i Kerlingarfjöllum.
Margir smádalir, gil og gljúfur ganga inn i Torfajökul öllu
megin og eru þar viða hverir, helzt brennisteinshverir, en
þó laugar sumstaðar, á stöku stað eru þar heitar
uppsprett-ur undir fönnum og hafa brætt göt á þær: viða sjást þar
menjar fornra hvera, sem eru útkulnaðir fyrir löngu. Stærsta
dalskoran gengur inn i Torfajökul að norðan og heitir
Jökul-gil; úr þvi rennur á saman við Námskvisl norður í Tungná,
en fjallshlíðarnar norður af gilinu, upp af Kýlingum, heita
Barmur. Torfajökull er enn að mestu ókannaður og ekki
þekkja menn þar neina skriðjökulstanga, þó vel geti verið að
þeir séu til. Undan Torfajökli renna jökulkvíslar og
bergvatns-kvislar i allar áttir, i Hólmsá, Skaftá, Markarfljót ogTungná.
Hekla er ekki beinlínis jökulfjall, en á henni eru þó
stórir hjarnskaflar, sem mjög sjaldan þiðna algjörlega, en
samanhangandi jökulbreiður eru þar ekki. Norðvestan i
fjallinu eru oftast stærstu fannirnar og i þeim margar
sprung-ur. Norðan við Markarfljót, upp af Fljótshliðarfjöllum. er
Tindfjallajökull, 4660 fet á hæð, lítill jökull samsettur
af fannbreiðum milli hvassra tinda; hann mun tæplega vera
hálf ferh. mila að flatarmáli. Frá Tindfjallajökli ganga 5 eða 6
smáir en brattir skriðjöklar. Yalákemur i tveim kvíslum undan
tveim skriðjöklum að vestanverðu, Blesá úr litlum jökultanga
nokkru norðar, þær falla báðar i Rangá eystri. Til
norð-austurs ganga tveir skriðjöklar, sem kvislar koma úr i
Hvitmögu, en hún fellur i Markarfljót fyrir norðan
Græna-fjall; til suðausturs gengur skriðjökull niður að gljúfrum
þeim. sem Gilsá hefir upptök sin úr„ en hún fellur i
Mark-arfljót, fyrir innan bygð i Fljótshlið, fyrir austan
I^órólfs-fell. Pessi skriðjökulstangi gengur lengst niður. að 1798
feta hæð, en hinir enda flestir 2000 fet yfir sævarmáli;
sna;-linan mun liggja hér 3000 fet yfir sjó. •
Engin af fjöllunum eða fjallgörðunum milli Vatnajökuls
og Mýrdalsjökuls ná upp úr snælinu, þar eru því engar
jökulmyndanir sýnilegar, nema livað stöku skafiar sjást
sum-staðar i hinum hærri fjöllum. þó eru fjallgarðarnir milli
Skaftár og Tungnár merkilega snjólitlir á sumrum; þó þar
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>