Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Vatnajc’ikull.
39
ar svo aftur um Kverkfjöll. hájökulliim mun líklega vera
5—6000 feta hár. Eldvörp eru víða undir isnum. þó litla
grein viti menn á þeim. reykjarmekkir hafa viða sézt upp
úr jöklinum og stundum hafa þar orðið stór gos, sem menn
þó hafa litið vitað um. sakir fjarlægðar. Niður úr
hjarn-breiðum Yatnajökuls gengur fjöldi af skriðjöklum. tölu þeirra
vita menn eigi með vissu. eg skoðaði þar á ferðum mínum
33 skriðjökla. en herforingjarnir dönsku. er mælt hafa
Skafta-fellssvslu, hafa auk þeirra fundið þar 9 smáskriðjökulstanga,
svo nú eru alls 42 kunnir; fieiri finnast eflaust, þegar
ör-æfin verða mæld. Stærð skriðjökla þeirra, er ganga niður
úr Yatnajökli. er mjög mismunandi, sumir eru afarstórir, en
sumir aðeins smátangar, fer þetta eðlilega eftir landslagi
næst jöklinum og eftir lögun undirfjallanna. Að vestan og
norðaustan eru skriðjöklarnir stærstir, en suður og norður
ganga þó lika stórir jöklar, þar sem landslag leyfir og
eng-in fjöll eru til fyrirstöðu, en þar sem undirfjöllin eru há og
úr hörðu grjóti. skiftast jöklarnir í smærri kvíslar niður i
dalskorur og gljúfur.
011 vesturhlið Yatnajökuls er einn samanhangandi.
stór-vaxinn skriðjökull, sem gengur niður af aðalhveli
Yatna-jökuls, vestur yfir hin lirjóstrugu öræfi milli Fljótshverfis
og Kaldakvislarbotna, en með þvi að jökullinn er svo
hrika-lega stór, gætir varla fjallgarðanna. sem undir hann hverfa.
Jökull þessi er vanalega kallaður Skaftárjökull eða
Siðu-jökull. gengur rönd hans bogadregin alla leið frá
Yonar-skarði að uppsprettum Núpsár, norðaustan við Fljótshverfi,
og er 10 milur á lengd. Undan Skaftárjökli renna þrjár
stórár: Tungná, Skaftá og Iiverfisfljót. Fyrir sunnan
Von-arskarð stendur hamrahlíð upp úr jöklinum, en litlu sunnar
eru tveir strytumyndaðir tindar. sem heita Kerlingar og
sjást langt að. Milli Vonarskarðs og Tungnárbotna gengur
jökullinn fram á sundurgrafna. kollótta móbergshálsa með
sanddölum og lægðum. I Tungnárbotnum liggur jökullinn
fram á malarsléttu. sem uppsprettukvislar Tungnái- renna
um og kemur nyrzta kvíslin úr stóru jökulporti og’eru {>ar
háir jökulhamrar, en af þvi jökullinn er svo stór og breið-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>