- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
40

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

40

Jöklar.

ur, þá synist hann í fjarska lágur aö framan; röndin er á-

kafiega óhrein, viða alsvört af grjóti og aur, en breiðar grjót-

rákir ganga langt upp á jökul. Fram með allri rönd skrið-

jökulsins eru lágar jökulöldur i smáhólum og eru þær stutt-

an spöl frá jöklinum, svo auðséð var 1889 og 1893 að hann

var að draga sig svolitið til baka. Alstaðar sitrar vatn út-

undan jöklinum, og sumstaðar stiíiast það fyrir innan jókul-

öldurnar, svo þar verða dálitlir uppistöðupollar af jökulvatni.

Jökulröndin liggur i Tungnárbotnum rúm 2000 fet yfir sjó.

Milli Tungnár og Skaftár ganga skörðóttir móbergsfjallgarð-

ar upp að jökli, verða þar litilsháttar skörð í jökulröndina,

en skriðjökullinn er svo feykilega stór, að þetta hefir engin

áhrif á aðallögun hans; þar við enda fjallgarðanna helir

jökullinn rakað saman miklu grjótrusli i háar öldur. og i

hvilftum við jökulinn eru uppistöðutjarnir af mjólkurhvitu
t

jökulvatni. I dæld milli fjallgarðanna er vatnið Langisjór,
sem fyr hefir verið getið, og nær það alveg upp að jökli.
Suður af Fögrufjöllum er hálendið nokkurnveginn slétt. og
þakið hraunum, er ullu upp úr jörðu 1783, frá hinni miklu
eldgigaröð, sem gengur gegnum fjallið Laka og nær upp i
jökul. I króknum sunnan við Fögrufjöll eru uppsprettur
Skaftár, 2024 fet ylir sjó; jökullinn er hér sem annarstaðar
mjög óhreinn af aur og grjóti og jökulöldur i löngum garði
liggja fram með honum. Tæpri milu sunnar, 2088 fet yfir
sjó, kemur Hverfisfljót út úr jökulkróknum sunnan við
eld-gigaröðina miklu. Jökulbrúnin yzta er hér suðureftir
sam-anhangandi ishamrahlið 3—400 fet á hæð. Jökulhamrar
þessir eru alsvartir af aur og grjóti og eru i þá ótal vatns •
rásir, skörð og gil, alveg einsog i vanalegri fjallshlið,
is-lögin i jökulhömrunum sjást glögt eins og basaltlög í fjalli.
Framan til á jöklinum eru stórar isstrvtur svo þúsundum
skiftir; þegar hærra dregur upp í jökulinn, eru á honum
breiðar, bogadregnar aurrákir jafnhliða jökulröndinni, en
heljarbjörgum er stráð um hann allan neðantil. Fram með
jökulbrúninni er samanhangandi röð af jökulöldum, að
með-altali um 100 fet á hæð; þar sem fijótið hefir brotið úr þeim,
sést að jökulís er innan i. Hverfisfljót rennur frá upp-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0052.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free