- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
47

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Jöklar,

47

an á ab giska tæpar tvær ferli. mílur aö stærð og líklega
rúmlega 3500 fet á hæð; norðurhluti jökulsins er hjarnbunga
óslitin, en suður ganga mjóar álmur, sem leysast í sundur
i hjarnskafia-raðir milli hvassra tinda og fjallseggja. A
eggj-um þeim, sem ganga út að Flugustaðadal, er
Jökulfellstind-ur hæstur, þann tind kalia Lónmenn Hrútatóartind,
Afrétt-artindur er hár tindur nokkru vestar; út af Hofsjökli eru
ennfremur Tungutindar norðar og Knappadalstinclar sunnar
o. fi. Yfir jökulinn má fara úr Hofsdal í Viðidal um lægð
fyrir norðan Tungutinda, en stundum er þar þó ófært fyrir
sprungum; í slakka þessum eru jökulöldur miklar af urð
og grjóti. Morsárjökull heitir litill skriðjökulstangi, sem
gengur undan vesturhlíð Hofsjökuls niður i liliðar Viðidals.
Norðan við Hofsjökul eru öræfi og urðir, en suður og
aust-ur af honum háir fjallgarðar og tindar og eru þar viða
hjarn-skaflar i botnum og lautum. Norður af Hofsjökli, milli
Geit-hellnadals og Hamarsdals, er Frándar j ökull, það er
reglu-leg hjarnbunga nokkru stærri en Hofsjökull, líklega rúmar
tvær ferli. milur á stærð eða hálf þriðja; hæðin mun vera
svipuð einsog á Hofsjökli. Jökull þessi heíir aldrei verið
kannaður og ekki þekkja menn þar neina skriðjökla, en
læk-ir veita jökulvatni i Hamarsá, og Geitliellnaá fær líka
jök-ullit sinn úr jökulgili þvi, sem heitir Sunna. Utantil i
Pránd-arjökli er Sunnutindur, það er stór hamrakista, sem
stend-ur fram úr hjarninu.

Við vesturendann á Vatnajökli, vestan við Vonarskarð,
i miðju landi, er Tungnafellsjökull, sem nyrðra er
kall-aður F1 jótsj ökull, hann má enn heita gjörsamlega
ókann-aður, þó ferðamenn hafi séð nokkur deili á honum i fjarska.
Tungnafellsjökull mun vera um þrjár ferh. mílur á stærð
og rúm 5000 fet á hæð; það er aflöng jökulbunga, sem hvílir
á fjallaþyrpingu úr móbergi; skriðjöklar ganga efiaust niður
úr hjarninu, þó eigi séu þeir synilegir að austan, en
jökul-tangar kvað ganga niður i dali til norðurs og norðvesturs,
þaðan renna kvíslir i Pjórsá og svo Jökulfall, sem fellur
norður i Skjálfandafljót. Norðaustur undan Fljótsjökli
geng-ur tindóttur fjallgarður, en annar til suðurs og suðvesturs

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0059.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free