- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
85

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Hraun.

85

ingsfet að rúmmáli, og eru þá 15—20 sinnum stærri en
meðalhraun úr Vesúv og tvöfalt stærri en vanaleg
Etnu-hraun. Önnur islenzk hraun hafa þó orðið margfalt stærri,
Eldgjárhraunið á Skaftártunguafrétti þekur meira en 12 ferh.
mílur og er 290 þús. mill. teningsfeta að rúmtaki, en hið
mesta hraun, sem nokkurstaðar hefir myndast i einu gosi,
svo menn hafi sögur af. er Skaftárhraunið, sem myndaðist
á 4—5 mánuðum 1783, það er 10 ferh. mílur á stærð en
miklu þykkra en hitt og því 400 þús. mill. teningsfet að
rúmtaki og þar við bættust að minsta kosti 100 þús. mill.
teningsfeta af ösku og gjalli. Sum hraun. sem runnið hafa
fyrir landnámstið, eru miklu stærri1)

Flest hraun eru gróðurlaus á öræfum, svartir liákar og
liflausar auðnir, roksandshólar á köflum, en ösku og
gjall-hrúgur á stangli. Pó úrkoma sé mikil, hverfur hún i
hraunin, svo viða er þar tillinnanlegur vatnsskortur, en undan
röndum hraunflákanna bulla upp ótal uppsprettur og lindir,
sem sameina sig stundum og verða að stórum ám
Odáða-hraun má heita alveg vatnslaust, en fjöldi af ám kemur
undan því, einkum að vestan, eins er i Hekluhraunum, á
Reykjanesskaga og í öllum stórum hraunbreiðum, að vatn
sést varla nema á stöku stað i djúpum gjám.

A hinum hæstu öræfum sést varla nokkui- jurt i
hraun-um. ekki nema einstaka skófir á steinum hér og hvar, þar
sem roksandur er i lægðum, er þó stundum dálitið af
mel-gresi. Mismunur gróðursins eftir hæðinni sést vel á
Fram-bruna, sem nær úr Trölladyngju niður i Bárðardal; uppi
hjá eldfjallinu er hæð hraunsins nærri 3000 fet yfir sjó,
neðst i Bárðardal varla meira er 200 fet. Uppi við
Trölla-dyngju sést varla stingandi strá, neðar eru víðirtoppar og
mellmausar hér og hvar, og allgóður hlauphagi fyrir fé.

r

Fratnbruni í Odáðahrauni, sem koniið hetir úr Trölladyngju,
er á að gizka 740 þús. mill., Hallmundarhraun 340 þús. mill.
tenings-t’et, en Veiðivatnahraun, sem runnið hefir t’rá Veiðivötnum suður a«>
sjó, hjá Eyrarbakka, er stærst allra hrauna á Islandi og á að gizka
1380 þús. mill. teningsí’et að rúmmáli.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0097.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free