- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
99

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Gjall og aska.

99

neð ýmsri stöðu, þvi kólfamir standa altaf
lóð-mnarflötinn. I stórum hraunum, sem mynduð
gum flóðum frá sama eldvarpi, eru oft mörg lög,
-r með ýmsri gerð, sum gjallkend, sum þétt, sum
"*. s. frv. Mörg hraun klofna lika i hellur, sem
t á mestu þrýstingarlinuna, er hraunið rann, og
íunai’fletinum. Hellumyndunin er algengust,
ieðjan hefir eigi öll verið samkynja, og hvergi
ar eins stórar og einkennilegar einsog i
iiparit-t. d. i Laugahrauni við Torfajökul, þar flysjast
t i margra faðma háar, íhvolfar hellm-, með
bung-hraunröndinni. Kólfamyndun er sjaldgæfari i
liparithraunum. Blágrýtishraun hjaðna flest mjög við
kóln-unina og þar sem hraun hafa runnið fram með hliðum, sést
stundum hraunkragi nokkrum álnum fyrir ofan yflrborð
ln-aunsins, einsog það nú er; þangað náði hraunið meðan
það rann og áður en það sjatnaði.

Gjall og’ aska. Eldvörpin þeyta i hverju gosi ösku,
hraunmylsnu og gjallmolum hátt i loft upp og oftast líka
stórum og smáum hraunklessum og hraunkúlum. Alt hið
stórgerðara, sandur. gjall og hraunmolar falla ni^ur i
kring-um uppvarpið. fjær eða nær eftir þyngdinni, en askan, sem
er smágerðust og léttust, berst oft með vindi langar leiðar
og stundum til annara landa. fó oft beri mikið á
ösku-gosum islenzkra eldfjalla, þá er þó rúmtak þess lausagrjóts
og þeirrar ösku, er þau þeyta úr sér, oftast minna en
rúm-tak hraunanna, sem úr jippvörpunum renna. Ekki hafa
menn orðið varir við, að þau eldfjöll gjósi hrauni, sem
liggja undir jökulbreiðum, eins og Katla og gosstaðurinn upp
af Skeiðarárjökli, en öskufallið er oft mikið, þegar slík
eld-fjöll gjósa. Má vera að eldleðjan, sem upp vellur, verði
öll að dusti og ösku, sökum þess að jökulisinn bráðnar
skjótt, verður að heitu vatni, og streymir i sifellu niður i
gjána og ummyndast i gufu, sem tætir sundur hið glóandi
hraun og gerir það að dusti. Pó getur vel verið að hraun
renni undir þykkum isbreiðum, þó menn hafl ekki orðið
varir við það enn. Stundum gjósa önnur eldfjöll eintómri

7*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0111.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free