- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
113

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Hraun á Snæfellsnesi.

113

garðinn er Búðahrann nafnkunnast, það þekur alt
lág-lendi, frá Búðum til Breiðuvikur. Hraun þetta er
hellu-hraun og eru þar viða dottnar niður kringlóttar spildur og
eru stórir katlar i hrauninu og i þeim mikill gróður.
Hraunið hefir komið úr stórum gíg í miðju hrauninu, sem
heitir Búðaklettur; gigur þessi er bygður úr rauðu gjalli
og þrefaldur, hann er 210 fet á hæð yfir jafnsléttu, 312 fet
yfir fiæðarmál, hann er opinn til suðvesturs, þar hefir
hraunið alt ollið út og er þar mikið hærra en norðaustan
við giginn. Frá Búðakletti liggja hrauntraðir miklar eftir
rensli hraunsins og fyrir enda þeirra er Búðahellir, hann
hefir m^mdast á sama hátt og Surtshellir; gólfið er slétt og
veggirnir hálfgleraðir, með hrufum og körtum, en neðan á
veggjunum eru víða rákir eftir rensli eldleðjunnar.
Hellir-inn er um 50 álnir á lengd, breiddin um 10 álnir og hæðin
4—5 álnir; botninn er einsog steyptur og upp úr honum
liggur hola, sem liklega gengur innundir gíginn.

Niður úr Snæfellsnesfjallgarðinum að sunnanverðu hafa
nokkrar litlar hraunspyjur runnið, en þær eru allar enn

r

órannsakaðar. A brúninni, þar sem Fróðárheiðarvegur kemur
niður, stendur Mælifell, sem ef til vill er gamall eldgigur.
Þá hefir Bláfeldarhraun runnið niður af fjallsbrúninni
fyrir vestan Lýsuskarð, suður af Rauðukúlum; það hefir
fallið i stórum fossi niður af fjallsröndinni, sem er um 1500
fet á hæð; brúnin hefir sprungið i sundur og hefir þar
myndast stór hraungjá og vestan við hana sýnist vera
dá-litill eldgigur. Rétt austan við aðalhraunfossinn hafa tvær
seigar hraunkleprur runnið niður hamrana og komist niður
i miðja hlið; fyrir neðan fjallið hefir hraunið breiðst út um
mýrlendið, en er þó ekki stórt. Fyrir austan Lýsuskarð
hjá Hraunsmúla hefir lítið hraun einnig runnið niður
hlið-ina og enn austar er Miðhraun, sem fallið hefir niður hjá
Háskaskarði.

Norðan við fjallgarðinn er Berserkjahraun mest, það
hefir runnið úr gigaröð fyrir norðan Kerlingarskarð og er
stærsti gigurinn á vinstri hönd, þegar maður ríður niður
skarðið, næsti gigurinn er 440 fet á hæð yfir fiatlendi, 688

8

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0125.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free