- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
116

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

116

EldfjölL.

er borgin«. Petta hefði átt að vera um miðja 10. öld, en
getur ekki samrýmst við aðrar sögur. I Landnámu sjálfri
stendur, þar sem talað er um landnám Skallagríms: »hann
nam land utan frá Selalóni ok et efra til Borgarhrauns ok
suðr alt til Hafnarfjalla«, en Skallagrimur kom út hingað,
að menn ætla, 878. I Grettissögu er lika getið um
Borgar-hraun, þangað elti Grettir Gisla og hyddi hann þar með
hríslu, sem hann reif upp, þetta mun hafa verið árið 1022,
og Borgarhraun þá skógivaxið, en það getur eigi staðist.
hafi það runnið á 10. öld; hraunið er að öllum likindum
miklu eldra. Fyrir neðan Fagraskógarfjall, milli Kaldár og
Hitár, er Barnaborgarhraun, það er á sléttlendi, nærri
kringlótt; aðalgigurinn, sem heitir Barnaborg, er i
hraun-inu miðju, hann er hlaðinn upp af klepruðum hraunlögum
og rauðu gjalli og á honum tvö op og hrauntraðir miklar
frá; i hrauninu er töluverður gróður, lyng, birkihríslur og
viðir. I Hitárdal eru einnig mikil hraun og niður
Grjót-árdal, vestan við Svarfhólsmúla, hefir Múlaselshraun
runnið; úr vestri Skarðsheiði hefir lika komið hraun niður

r

Hraundal, niður með Alftá, það hefir komið úr eldgígum
skamt frá suðvesturhorni Langavatns, 540 fet yfir sjó.
Aust-ast af hraununum á þessu svæði er Bró karhraun, í mynni
Norðurárdals hjá Hreðavatni. Hraunið hefir komið úr tveim
gígum, hinn syðri er 217 fet á hæð og 70—80 faðmar að
þvermáli, hinn nyrðri er lægri en eins stór að ummáli.1)
Aðalhraunið hefir komið úr nyrðri gignum, sem er opinn
til norðurs, og hefir runnið niður i Hreðavatn og svo fram
með holtunum fyrir neðan vatnið niður að Norðurá, Frá
syðra gignum, sem opinn er til austurs, hafa runnið
hraun-straumar til norðausturs að bænum Hrauni og til austurs
og suðausturs að Norðurá. Upp úr hrauninu standa viða
ísnúin blágrýtisholt og eldleðjan hefir hér komið úr sprungu
eða holum i. blágrýti. Halli hraunsins niður að Norðurá er
1° 14^/2’, rúmtak þess um 6500 mill. teningsfet, svo það er

Syðri gígurinn sést í fjarska á 55. niynd, vinstra megin við

Baulu.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0128.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free