Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Hallmundarhraun.
117
nokknð mimia en Sveinagjárhraimið 1875. Hraunið er mjög
mosavaxið og á þvi sumstaðar skógur, það er ekki fjarska
gamalt, en þó liklega runnið fyrir landnámstið.
Hraun við Langjökul og Hofsjökul. Af hraunum við
Langjökul er Hallmundarhraun langstærst, það er nærri
9 milur á lengd og l1/^ mila á breidd, þar sem það er
breiðast, i jökulkrikanum fyrir norðan Eiriksjökul, en viðast
er það miklu mjórra. Hraun þetta hefir komið úr
norð-vesturenda Baldjökuls; þar er gígaröð utan i hliðinni, nærri
uppi við snælinu, og hallast hraunið þaðan niður og
mvnd-ast breið bunga upp að uppvarpinu, halli hennar er að
sunnanverðu 1—2°, en að norðan 8—4°, er hraunið þar mjög
úfið Brúnir fjalla þeirra þar norður af, er Langjökull hvilir
á, eru beinar og sléttar að ofan, en eigi jafnbrattar niður
að hálendinu, á þeim eru 3 eða 4 hjallar eða þrep; aðalefni
fjallanna er móberg, en ofan á hverju þrepi er hraun og
efst á undirfjöllunum nær hraun þetta alveg upp i jökul og
sýnist vera mjög fornt. Svo virðist sem fjöllin hafi klofnað
i langar ræmur, er hafa sokkið. svo stallarnir mynduðust;
hefir umbylting þessi orðið eftir að hið gamla hraun rann,
sprungurnar eru jafnhliða og stefna frá enda Lyklafells á
giga þá suður við jökulrönd, sem Hallmundarhraun hefir
runnið frá. fegar fjöll þessi klofnuðu, hefir mikið gengið
á og hefir sá atburður ef til vill orðið i þann mund, er
Hallmundarhraunsgigirnir gusu. Nyrzti endinn á
Halimundar-hrauni, við hin neðri Fljótsdrög, er apalhraun. mjög úfið.
Stórgrvtinu er hrúgað saman i bingi, þar eru djúpar holur,
sprungur, gljúfur og gjár, og er þar ófært hverri skepnu;
grámosi er hér mikill i hrauninu og strá og blóm á stangli
hingað og þangað; hraunröndin er há, 50—60 fet. Annars
er aðalhraunið altsaman stórgert helluhraun og alt brotið á
vfirborði; þar sem það er breiðast, er að sjá yfir það einsog
útsæ, þegar mikil kvika er og undiralda, dalir óreglulegir
og ölduhálsar stærri og smærri; allar hraunöldurnar eru
sprungnar og á hverri bólu ótal rifur; öldurnar eru oftast
20—30 fet á hæð. en víða er töluvert hærra af hryggjunum
r
niður i dalina. A yfirborði hraunsins eru ákallega mikil
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>