Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Skjaldbreið.
119
siijór af því, og þegar hann eigi leysir til fulls, er mjög
einkennilegt frá sveitum að sjá bunguna kolsvarta með
ein-tómum hvitum skellum og dröfnum. Pað er mjög hægt að
komast upp á Skjaldbreið, hraunin hafa jafnan halla og
hvergi er bretta. Skjaldbreið er bröttust að austan, 8—10°.
en að sunnan og vestan er hallinn 4—6°. Frá Skjaldbreið
hafa runnið allmikil hraun, sem ná nokkuð vestur á
heið-arnar. en aðalstraumiuinn hefir fallið suður og fyllir dalinn
milli Goðaskarðs og Tindaskaga, niður að norðurenda
Þing-vallavatns, og er 3—4 mílur á lengd, en hallinn tæplega 1°.
Efst á Skjaldbreið er stór gigur með sama sniði einsog
eld-vörp vanalega eru á hraunbungum. Gígurinn er
sporöskju-myndaður og 900 fet að þvermáli, fullur af snjó og is,
randir hans eru brattar, og smáir hraunstrókar á þeim hér
og hvar í kring. Hraunin hafa runnið frá gignum hægt og
hægt á alla bóga og eru mjög gömul, niðri undir bygð er
viða á þeim jarðvegur með skógi. Hraunin við Þingvelli.
þau sem efst eru og gjárnar eru í, eru töluvert yngri. og
liggja ofan á hinum fornu Skjaldbreiðarhraunum. Þessi
nýrri hraun virðast eftir halla og landslagi vera komin frá
eldborgum við Tindaskaga og Kálfstinda og hafa runnið
niður beggja megin við Hrafnabjörg, þaðan eru ávalar bungur
af hraunum suður og vestur að Pingvallavatni, og eru þær
víða mosa- og skógivaxnar. Fyrst hafa stór hraun runnið
frá Skjaldbreið niður í vatn, svo hafa hin hraunin komið
austan að og eftir það hefir landið sokkið milli Hrafnagjár
og Almannagjár.
Suður af Kálfstindum er Lyngdalsheiði. forn
hraun-bunga, breið og með litlum halla (1—3°), aðalgigurinn hefir
liklega verið þar, sem nú heita Prasaborgir. Suður af
Lyng-dalsheiði eru margir gigir, sem veitt hafa hrauni yfir
suður-og vesturhluta Grímsness. Þar heita Kerhólar og
Seyðis-hólar og mörg önnur nöfn hafa gígir þessir, þeir eru
rauðir og vatn i sumum, hraunið er gamalt og uppgróið og
viða skógi vaxið vestan til. Suður af Langjökli er annað
hraun austar, sem runnið hefir niður á undirlendi, milli
Bjarnarfells og Yztafells i Laugardal, og heitir þarUthlið-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>