Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
120
EldfjölL.
arhraun. Hraun þetta kvað vera komið úr gigum fyrir
austan Hlöðufell og er aðeins partur af stóru hraunfióði,
sem tekur yfir allstórt svæði uppi á hálendinu. Austur af
Hlöðufelli heitir hraunið Lambahraun og suður af fellinu
er hæð þess 1560 fet yfir sjó, en siðan hefir það runnið i
500 feta háum fossi niður gegnum Hellisskarð, en breikkar
svo aftur og fyllir allan dalinn milli Bjarnarfells og
vestur-fjallgarðsins, sem gengur upp af Yztafelli; efri hluti
hraun-breiðunnar í dalnum heitir Svinahraun, og neðri hlutinn og
það af hrauninu, sem fallið hefir niður á láglendið, heitir
r
Uthliðarhraun. Yestur af Bjarnarfelli er einstakt fell, sem
heitir Miðfell, og hefir hraunið runnið kringum það. I
r
Uthliðarhrauni er gróður töluverður og sumstaðar skógar-
kjarr. Milli Lambahrauns og Langjökuls er sandur, sem
heitir Rótarsandur, en Svinahraun nær inn að Sandvatni.
/
A Kjalvegi, milli Langjökuls og Hofsjökuls, er
Kjal-hraun, á 1600 til 2700 feta hæð yfir sjó; það er mikið
hraun, 7 milur á lengd og 1—1^/a míla á breidd um
miðj-una, það er helluhraun, með stórum hraunblöðrum og
all-viða sandorpið, i þvi er tölúverður mosi og hér og hvar
hagar nokkrir, lyng og viðir. Kjalhraun hefir runnið úr
hraunkatli miklum, sem er i miðju hrauninu og hvassir
hraunhnúkar i kring, þar heita Strýtur. Hrauninu hallar
hægt og hægt út frá katli þessum og myndast þar
flat-vaxin hraunbunga (2°) með smátindum efst og er hinn hæsti
þeirra 2779 fet yfir sjó; gigurinn er á að gizka rúmir 500
faðmar að þvermáli. I katli þessum er hraunbotn flatur og
á sléttunni 4 eða 5 stórir katlar, gigbotninn hefir til forna
verið vellandi hraun. Miðpartur hraunbungunnar hefir smátt
og smátt sigið og eins gigurinn sjálfur, enda sjást
hringmynd-aðar sprungur kringum barmana; þó standa stórar spildur
eftir af upprunalegu gigröndinni, það eru strýturnar, sem
bera svo hátt yfir hraunbungurnar alt í kring. Austasta
strýtan er hæst, það er allstórt fell, þverhnýpt að vestan,
niður að gígnum, hraunlögin i þvi hallast öll til austurs,
i fellinu eru stórar sprungur, af því það hefir klofnað, þegar
landið var að siga í kring; suðvestan við gíginn er uppmjó
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>