- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
143

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Veiðivatnahrauu.

143

klungur, klepraðir smágígir, djúpar holur, gjár og sprungur,
hellar oghraunpipur. Vestan við Vatnakvisl er einnigeldgigaröð
og eru syðstu gigirnir st,ærstir. Pað eru tvær strýtur, 5—
600 feta háar, gamlir eldgígir, myndaðir af eintómum,
reglu-legum lögum af vikri og gjalli, og hallast lögin frá miðju
gíganna út á við, en seinna hefir úrkoman grafið þá mjög
i sundur, einkum hinn nyrðri. Syðri gigurinn er mjög
stór og í honum djúp, kringlótt tjörn og úr henni örstuttur
ós niður i Tungná Ymsir gjallgígir eru norðar i
hraunun-um og i Tungnárbotnum, uppi við jökul, eru lika gigii’.

Hraunhafið norður og vestur af Fiskivötnum er ákaíiega
mikil eyðimörk, 2—3—4 mílur á breidd og 5—8 milur á
lengd niður að Tungná. Hraun þessi eru víða sandorpin,
hulin sikvikandi roksandi, en sumstaðar eru þau ber, svartir
flákar, gjörsamlega gróðurlausir. Norður undir Vonarskarði
eru hraun þessi samanhangandi við Hágönguhraun, sem
ná upp að suðurhálsum Tungnafellsjökuls. Enginn veit enn
með vissu, hvaðan þessi stórkostlegu hraun eru komin, eða
úr hve mörgum eldvörpum þau eru runnin, enda eru hér
ein hin ljótustu öræfi Islands, ákaflega örðug yfirferðar og
alveg graslaus, heilar dagleiðir. Eftir hallanum hlýtur mikið
af hraunum þessum að vera komið upp nærri Yonarskarði
og undirhliðum Yatnajökuls, en þau svæði eru enn ókönnuð.
Pá má vera að nokkur hluti hraunanna sé frá gigum við
sjálf Yeiðivötn, og eru hin fornu uppvörp þá hulin undir
hinum geysimiklu gjall- og vikurlögum, sem þar eru
al-staðar á yfirborði.

Hraun þetta er eigi þrotið fyrir það, þó komið sé niður
að Tungná, hraunbreiðurnar halda áfram samanhangandi
um Landmannaafrétt, niður með Þjórsá og svo um
lág-lendið niður að sjó, hraunið er 23 milur á lengd, frá
Vonar-skarði niður að sjó, og er þannig langlengsta hraun á
landinu, en i heild sinni er það enn mjög litið kannað.
Þegar hraunið kemur niður fyrir Tungná, breiðist það út
um afréttinn við Helliskvisl, rennur svo niður að Pjórsá,
fyrir neðan Búðarháls, er þar beggja megin ár og heitir
þar Hafið að vestanverðu, hetir kvisl úr þvi runnið niður

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0155.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free