- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
145

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Eyjafjallajökull.

145

sást eldglampi og eldglæringar yíir Eyjafjallajökli og næsta
morgun sást hvitur gufustrókur upp af jöklinum, hann
sortn-aði smátt og smátt og varð að öskustólpa, sem í fyrstu var
lítill. en óx smátt og smátt og 21.—27. s. m. barst askan
yfir Ytri-Eyjafjöll og Eystri Landeyjar; hvellir heyrðust og
undirgangur og mikill vöxtur hljóp i ár þær, sem spretta
upp í jöklinum. f>á kom ennfremur vatnsíióð mikið með
jakagangi úr falljökli þeim, sem Jökulsá kemur úr, innan
við Langanes, sá skriðjökull kemur beint niður úr hinum
stóra gíg efst á fjallinu, því hann virðist opinn til norðurs,

83. mynd. Eyjafjallajökull.

og ætla menn að þar haíi einnig komið jökulhlaup mikil
fyrir landnámstíð. Svo var hlaup þetta mikið, að það flaut
yfir eyrar allar milli Langaness og innanverðrar Fljótshliðar
og viðast komst það upp undir brekkur, búsmala varð þó
bjargað undan, þvi flóðið smáóx, en kom ekki alt í einu.
Hlaup þetta fylti upp allan farveg fverár og alla
Markar-fljótsfarvegi forna og nýja, en þegar landið breikkaði, er
framar kom,þá fór það eigi yíir bygða jörð, svo það gerði skaða
að mun, enda fór það að smáréna þrem stundum eftir að
það steig hæst. Eftir að flóðið var þverrað, voru feiknastór

10

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0157.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free