- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
172

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

172

EldfjölL.

varð í Öskju 3. janúar, sást úr Pingeyjarsjslu, en gerði
engan skaða i bygð; þetta gos kom úr gígunum við
hvera-gilin i suðausturhorni jarðfallsins, sem fyr var getið. Pegar
gos þetta byrjaði, hafa gufurnar sprengt kletta úr
gígbotn-inum, stóra sem hús, og kastað þeim meir en 100 fet upp
úr gignum. Eldgigii’ þessir standa lægra en norðurgigurinn,
þeir eru 300 fetum neðar en hraunbotninn i Öskju. Pað er
einkennilegt, að einn af þessum suðurgigum hafði spúið
björgum af samankittuðum móbergshnullungum og is, i
gignum hefir liklega verið hjarnsnjór, er gosið byrjaði, og
þvi hefir grjót og is verið þar hnoðað saman i stóra kekki.
Gigir þessir eru nú eflaust gengnir niður í vatnið, siðan
það sté. Uppi undir brúnum jarðfallsins að austan er stór
sprunga og í henni mestmegnis hrafntinna Hliðar
jarð-fallsins upp af vatninu, milli vikurgigsins og suðurgíganna,
eru mjög brattar, allar huldar lausum vikri í ákaflega
þykk-um lögum. með djúpum skurðum og rásum, en stórar torfur
af fljótandi vikri fylla allar vikur i vatninu.

Um gos Öskju 29. marz 1875 hefir áður að nokkru
verið talað. Nóttina áður varð fyrst vart við öskufall á
Efra-Jökuldal, kl. S1^ f. h. varð þar niðamyrkur með
áköf-um þrumum og eldingum, 2 stundum siðar birti, en kl. 8—9
skall aftur á kolsvarta myrkur yfir alt Austurland, og
ösk-una dreif niður i mestu ákefð, varð að kveykja ljós á
hverj-um bæ og stóð þetta myrkur 4 eða 5 klukkustundir.
Vikur-molarnir voru i hinum fjarlægari héruðum á stærð við grjóu,
en stækkuðu er ofar dró, ofan til á Jökuldal voru þeir
hnefastórir, ennþá stærri voru þeir uppi i óbygðum. Milli
Herðubreiðartagla og Dyngjufjalla er vikurlagið svo þykt
á hraununum, að sléttað hefir yfir allar ójöfnur og fylt allar
dældir, vikurmolarnir eru þar flestir á stærð við
manns-höfuð og sumir jafnvel 2—3 teningsfet eða einsog
meðal-koffort. I öllum sveitum milli Smjörvatnsheiðar og
Beru-fjarðarskarðs féll aska þessi meira og minna og var
ösku-svæðið yfir 100 ferh. mílur á stærð hér á landi, en raunar
fór vikurinn miklu lengra, hið smágjörvasta dust barst til
Noregs og Sviþjóðar, sem fyr hefir verið getið. Af þvi

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0184.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free