- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
195

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Lanclskjálftar á Suðurlandi.

195

1734 varð mjög mikill landskjálfti, 21. marz, hrundu bæir í
Flóa og viðar. I Arnessýslu hrundu 30 bæir alls, en 60
eða 70 býli spiltust, 7 menn eða 8 dóu undir húsbrotunum
og margt af nautpeningi. 1752 hrundu 11 bæir i Ölfusi.

Hinn 14. og 16. ágúst 1784, árinu eftir Skaftárgosin,
gengu um Suðurland afarharðir jarðskjálftar. feir voru
harð-astir i Arnessýslu og Rangárvallasýslu, Jdó einkum i
Arnes-sýslu; menn fundu og allharða kippi um allan
suðvestur-hluta landsins og nokkrar hreyfingar i fjarlægum héruðum.
Fyrsti landskjálftinn, 14. ágúst, gerði mestan skaða i
Biskups-tungum, á Landi, i Efri-Holtum, Skeiðum og ofarlega i
Grimsnesi. fegar kippurinn kom, voru flestir komnh- heim
af engjum til máltiðar, urðu þvi margir undir húsum og
varð að grafa þá upp úr rústunum. Margir komust lifs af,
sem rétt sýndust komnir i dauðans greipar, og aðeins þrir
týndu lifi. Jarðskjálftinn 16. ágúst var harðastur i Flóa,
neðarlega i Grimsnesi og i Ölfusi. I Rangárvallasýslu
eydd-ust 29 bæir, þar i sýslu voru jarðskjálftarnir harðastir i
Efri-Holtum og af 39 bæjum, sem þar voru, féllu 23 algjörlega,
á öðrum bæjum féllu 94 hús i grunn og 50 önnur hús löm-

r r

uðust, svo lá við falli. I Arnessýslu var skaðinn miklu
meiri, þar féllu 64 bæir til grunna, 64 gjörspiltust og alls
urðu 372 bæir í’yrir stórskaða; 1459 hús féllu algjörlega,
212 voru nærri fallin, 33<» stórskemd; 11 kirkjur skemdust
mjög, en kirkjuna i Skálholti sakaði ei til muna, en flest
önnur hús á biskupsstólnum féllu eða skemdust Enginn
skóli var i Skálholti næsta vetur og var hann siðan fluttur
til Reykjavikur. Jarðskjálftar þessir fundust við Hellna
undir Snæfellsjökli, og vestur i Isafjarðarsýslu, eitt hús
brotnaði i Kalmanstungu, annað i Nyrðra-Reykjadal, þriðja
i Kjós. Hreyfingarnar voru svo harðar í mestu
jarðskjálft-unum, að sterkustu karlmenn, sem stóðu að slætti, tóku til
bragðs að setja orfhælinn sem fastast i meðalblautan völl og
styðja sig með afli við orfið, en gátu þó ekki staðið, og
maður, sem var i mýri að skera heytorf, sökk, meðan á
jarðskjálftanum stóð, ýmist i vatn upp undir kné, eða stóð
á þurru, eftir þvi sem bylgjugangurinn af hristingnum lægði

13*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0207.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free