Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
196
Landskjálftar.
jarðveginn, eður hóf hann upp aftur undir honum. Jarðrask
varð mikið við jarðskjálfta þessa, fjöllin léku á reiðiskjálfi.
og ótal skriður’ og björg hrundu niður á undirlendi; hinn
14. ágúst féllu 36 skriður úr vestanverðu Yörðufelli og
jarð-vegur losnaði víða i hliðum og rann ofan á láglendi.
Sprungur mynduðust víða, lækh’ og brunnar urðu hvítir
sem mjólk, gamlir hverir hurfu og nýir mynduðust. Arið
1789 urðu aftur miklir jarðskjálftar i Arnessjslu, þeir
byrj-uðu 10. júni og i viku þar á eftir var varla nokkurn tima
kyrt nótt eða dag og voru varla 10 mínútur milli
hræring-anna; oft urðu menn síðan varir við jarðskjálftana fram
eftir sumri. Yiða komu sprungur i jörðu og urðu sumar 2
faðma breiðar, mest jarðrask varð norðanvert við
Pingvalla-vatn og komu þai’ í hraununum ótal sprungur. Grundvöllur
fingvallavatns sökk að norðan og dypkaði það þeim megin
og hljóp á land, en að suðvestan grynkaði það svo, að þar
sem áður var 4 faðma dýpi, var þurt á eftir. Alfaravegur
forn, sem lá fyrir enda Almannagjár, varð undir vatni, svo
hann tók af, en síðan hafa menn farið Kárastaðastig niður i
gjána. Pá hrundu og margir klettar í Almannagjá og viðar.
Sagt er, að þá hafi alt land milli Almannagjár og Hrafnagjár
sokkið í’úma alin. Sökum skemda og breytinga þeirra, sem
urðu, varð jarðskjálfti þessi meðfram tilefni til þess, að
al-þingi var flutt frá Þingvöllum og breyttist i yfirrétt í
Reykja-vik. Hverirnir kringum Geysir tóku allmiklum breytingum
og þá mun Strokkur fyrst hafa myndast og gaus hann framan
af aðeins vindi eða gufu.
r
A hmni 19. öld fundust alloft smáir kippir á
Suður-landi, en harðir og skaðlegii’ jarðskjálftar komu fyrst seint
á öldimii, árið 1896, enda gjörðu þeir þetta ár meiri skemdir
á Suðurlandsundirlendi en flestir aðrir.
Landskjálft-arnir 1896 hófust alveg fyrirvaralaust um kvöldið hinn
26. ágúst, .þegar flestir voru nýháttaðh’, kl. 9,so mín. e. h.
Áðeins i Landsveit höfðu menn fyr um sumarið fundið
nokkra smákippi. Suðurlandsundirlendið hristist alt, en þó
langmest Rangárvellir, Land, Upp-Holt og Gnúpverjahreppur;
kippur þessi var voðalega harður og gjörði hið mesta tjón.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>