Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Lanclskjálftar á Suðurlandi.
199
fjörö sunnan jökla, meö öðrum orðum nærri um 1000 ferh.
mílur á lancli; liklega hefir alt jarðskjálftasvæðið á sjó og
landi verið tvisvar eða þrisvar sinnum stærra. Jarðskjálftar
þessir voru mjög vægir á hálendinu og heiðunum upp af
undirlendinu og það jafnvel mjög nærri
jarðskjálftahéruð-unum.
I þessum afarhörðu kippum varð víða jarðrask mikið,
skriður féllu úr fjöllum bæði á Suðurlandsundirlendinu og
fyrir utan það; einna mest varð skriðuhrunið úr Skarðsfjalli
á Landi. Utan á fjalli þessu hafði viðast verið þykkur
jarðvegur, grasivaxinn uppundir brúnir. Við jarðskjálftana
losnaði alstaðar um jarðveg þenna, svo hann sprakk frá
grundvelli, en rann þó ekki niður nema sumstaðar. Jarð-
103. mynd. Rústir af bæ, sem féll í jarðskjálftunum 1896.
hiaup urðu langmest vestan i fjallinu, á 13 stöðum, og stærst
nærri Hvammi. Mjög viða á láglendinu komu stórar og
smáar sprungur og gjár i jörðu, flestar og stærstar voru þær
á Skeiðum og voru hinar lengstu 1 /2—U/2 mila á lengd,
þær voru mjóar, en á þeim viða pyttir, 2—3 faðmar að
þvermáli. Margar sprungur mynduðust þá og i Landsveit,
aðalsprungan náði yfir þvera sveitina, frá Vestri-E,angá um
Lækjarbotna og Flagbjarnarholt vestur að Pjórsá, og var
fullar tvær milur á lengd, að mestu leyti óslitin. Nærri
Pjórsá, fyrir ofan Krók í Holtum, losnaði geysistór
jarð-vegstorfa frá undirlagi og rann niður brekku, hún var rúmar
3 vallardagsiáttur að fiatarmáli og 3—4 álnir á þykt. Stór
björg, sem stóðu djúpt i jörðu, köstuðust upp úr fari sínu
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>