- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
200

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

200 Landskjálftar.

o. s. frv. Bylgjuhreyfmg jarðvegsins var viða svo hörð,
að menn gátu ekki staðið og urðu að halda sér, sumstaðar
heyrðust dunur og dynkir neðanjarðar og hvinir i lofti.
Ar og vötn gengu á bakka sina, og brunnar og lækir urðu
i Arnessýslu hvitir á lit, en öðruvisi litir viðast i
Rangár-vallasýslu, oftast annaðhvort mórauðir eða rauðir; þetta var
eðlilegt, þvi jökulleir hvitur og grár er viða undir jarðvegi
i Arnessýslu, en móhella og rauður leir i Rangárvallasýslu.
Hverir breyttust mjög viða, mest þó i Hveragerði. þar
mynd-aðist, við næturkippinn 6. sept., nýr hver, sem i fyrstu var
geigvænlegur. Pegar gufan var að brjótast upp, rétt eftir

104. mynd. Bær mikið skemdur í jarðskjálftanum 1896.

kippinn, gengu öll ósköp á, og alt út i Hjallahverfi heyrðist
niður einsog mesta fossfall i hálfan annan klukkutima. I
Bæjaþorpi heyrðu menn fyrsta hálfa timann ógurlegt öskur
i hvernum, einsog i gufuskipspípu. Næsta morgun segja
menn, að reykjarmökkurinn hafi náð jafnhátt Reykjarfjalli
(6—700 fet), og gufustrókar afarháir þeyttust upp og niður
innan i mekkinum. Gos þessi lækkuðu fljótt og fyrstu
dag-ana gaus hverinn eigi hærra en 10—12 álnir, svo var smátt
og - smátt að draga úr honum, unz hann hætti alveg um
miðjan mánuðinn. Reykholtshver við Tungufijót breyttist
nokkuð, Strokkur hætti að gjósa. Geysir gaus um stund

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0212.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free