- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
202

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

202

Landskjálftar.

jarðlagaskipun á þeim svæðum; sævarmegin hljóta þar
stnndum að verða dálitil landsig, úr þvi jarðskjálftar koma
þar við og við.

Flatey á ökjálfanda hefur stundum orðið fyrir hörðum
jarðskjálftakippum. Arið 1260 er talað um »landskjálfta
hinn mikla norðm’ i Flatey« og 1755 eyddust þar 4 bæir.
Það ár voru jarðskjálftar miklir um alt Norðurland;
harð-astir voru þeir á nesjunum beggja megin við Skjálfanda,
einkum á Tjörnesi, harðir lika i Skagafirði utarlega, i
Fljót-um og Siglufirði, en linari i Húnavatnssýslu. Kringum
Húsa-vik á Tjörnesi hrundu 11. sept. 13 bæir til grunna, en 7
skemdust; þar i nánd mynduðust margar sprungur, og lækir
urðu gruggugir. Skriður féllu þá viða um Skagafjörð
utan-verðan og i Siglufirði. I Grimsey voru hræringarnar svo
miklar, að hús skemdust og hrapaði úr björgum. Margir
smákippir fundust hina næstu daga og hreyfingarnar hættu
ekki fyr en hinn 24. september. Arið 1838 komu miklir
jarðskjálftar á Norðurlandi, nóttina milli 11. og 12. júní. og
gengu þeir einkum yfir nesin milli Skjálfanda ogHúnafióa;
hrundu þá og skektust nokkrir bæir á útkjálkum milli
Eyja-fjarðar og Skagafjarðar, en grjót hrundi úr sævarhömrum
og spiltust fuglabjörg i Grimsey og Drangey. Einna
harð-astir voru kippirnir á Siglufirði og virtust þen’ koma
norð-austan úr hafilj. Landskjálftahræringar fundust eftir það
oft um sumarið.

r

A Húsavik og Tjörnesi urðu allharðir jarðskjálftar 1867
og 1868 og sérstaklega 17.—18. april 1872, þá hrundu nokkrir
bæir við Húsavik og tveir bæir á Flatey; sterkustu
kipp-irnir fundust þá um alt svæðið milli Langaness og
Eyja-fjarðar og féllu viða snjóflóð og skriður; á Flatey sogaðist
sjórinn frá ströndu og skeltist svo aftur langt upp á land.

’( Nóttina milli 11.-12. júní, frá miðnætti til miðmorguns, varð
líka vart við jarðskjálfta l>essa á Vestfjörðum, í Onundarfirði,
Boluug-arvík, Skutulsfirði og Iieykjarfirði við Djúp. Hreyfingarnar voru þrjár,
sú fyrsta stærst, hin seinasta minst. (Lýsing Isafjarðarsýslu eftir
torkel Gunnlaugsson. 1839. Hdrs. Bókmf.)

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0214.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free