- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
201

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Lanclskjálftar á Suðurlandi.

201

meira en áður og ýmsar aðrar breytingar urðu á Söndunum
hjá Geysi.

I jarðskjálftum þessum biðu fjórir menn bana, en margir

særðust meira og minna. I E-angárvallasýslu gjörfjellu 86

bæir, en 75 stórskemdust; af öllum ibúðar- og peningshúsum

féllu þar i sýslu 22 °/o, en i Arnessýslu 17 °/o; þar gjörféllu

75 bæir. en 80 stórskemdust. F}Trir utan húsahrunið varð

eðlilega mikil skemd á búshlutum, mat og málnytu. Pá var

safnað miklu fó, bæði á Islandi og erlendis, til hjálpar hin-

um nauðstöddu. Af þeim 150 þús. kr., sem gefnar voru,

t

gáfu Danir einir 115 þús., Islendingar 25 þúsund1).

A Vestfjörðum og Austfjörðum hafa menn mjög sjaldan
orðið varir viö jarðskjálftakippi og hafi einhver hristingur
fundist, hefir hann eigi haft uppruna innanhéraðs, heldur
verið aðeins öldukast af umbrotum annarstaðar. Pó
Norður-land hafi sjaldnar orðið fyrir stórskaða af landskjálftum heldur
en Suðurland, þá eru hreyfingar þar þó alltiðar, einkum
austan til, á jarðeldasvæðinu i Pingeyjarsýslu. A Tjörnesi,
í Kelduhverfi og Þistilfirði hafa landskjálftar verið
lang-harðastir og stundum gjört mikið jarðrask og tjón á húsum.
Smákippir hafa oft fundist á hinum vestari nesjum
norðan-lands, i Eyjafjarðar- Skagafjarðar- og Húnavatnssýslum, en
oftast hafa þeir verið linari inn til landsins en út til sjávar.
I Norður-f’ingeyjarsýslu eru mjög viða gjár og sprungur,
einsog áður hefir verið minst á, einkum upp af Axariirði,
og jarðfræðisrannsóknir benda til þess, að þar muni vera
stórir brestir i jarðarskorpu, t. d. eftir endilöngum Bárðardal
og viðar. Móberg er þar aðalbergtegund og eldfjöll mörg.
Pað er því ekki undarlegt, þó oft hrikti þar í
jarðarskorp-unni. I blágrýtishéruðunum vestur af Eyjafirði hljóta líka
að vera djúptliggjandi brestir, en litið vita menn enn um

Um þessa jarðskjálfta hefi eg, auk bókar þeirrar, sem fyr var
getið, látið prenta: Jordskjælv i Islauds sydlige Lavland, deres
geo-logiske Forhold og Historie (Geografisk Tidskrift XIV. 1898, bls.
93-113; XV. 1900, bls 93-121) og; Das Erdbeben in Island im Jahre 1896
(Petermann’s Mitteilungen. Gotha 1901. Heft. 3, bls. 53 — 56). Seinna
ritinu fylgja uppdrættir.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0213.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free