Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
204
Hverir og brennisteinsnámur.
IX. Hverir og brennisteinsnámur.
í flestum eldfjallalöndum koma heitar uppsprettur ur
jörðu, þó óviða eins margar ehisog á Islandi. Sagt er að
þær standi i sambandi við útkulnun jarðelda, og má vel
vera að svo sé. Þó virðast hverir á Islandi sjaldan mjög
nátengdir eldfjöllum, þó sumir séu nærri þeim, þá eru þó
flestir fjarri nýjum eldstöðvum. fegar eldgosum slotar,
gufar upp úr hinum nýju hraunum, einsog fyr hefir verið
getið, og setjast ýms efni á sprungubarmana eða kringum
holurnar, þar sem gufurnar koma upp. Setjast þá fyrst á
hraunin ýmsar salttegundir, einkum salmiak, þá brennisteinn,
klórjárn o. fl., en mest kemur þó upp af vatnsgufum. Þetta
kalla menn gosgufur (fumaroler) og geta þær stundum
hald-ist á eldfjallasvæðinu löngu eftir gosið, og það svo mörgum
öldum skiftir, en oftast hverfa þær úr hraunum og
eld-fjöllum og nágrenni þeirra fáum árum eftir gosin. Nærri
Mývatni og á Reykjanesi koma enn gosgufur viða úr jörðu.
Margir ætla að bráðin hraunleðja sé sumstaðar i jörðu
til-tölulega nærri yfirborði og að sjóðandi heitar gufur leiti
þaðan um krókótta ganga, holur og rifur í jarðarskorpu,
unz þær komast uppúr.
Nána þekkingu á þessum efnum hafa menn eigi enn,
þó er það víst, að hiti neðanjarðar er orsök allra hvera.
Afarheitar vatnsgufur með ýmsum uppleystum steinefnum
koma að neðan úr skauti jarðar og sameinast þar neðra
vatni, sem niður sigur. Hveravatnið er að öllum líkindum
mest komið ofan að, en mun oftast vera blandað gufum úr
innýflum jarðar, og þaðan hafa hverirnir hitann. Sumar
heitar uppsprettur eru súrar, mettaðar brennisteinsefnum, og
fellur brennisteinninn frá, er gufurnar kólna við það að
koma upp í andrúmsloftið; aðrar uppsprettur, hinir vana-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>