Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
206
Hverir og brennisteinsnámur.
rannsóknir; vatnsmegin hvera á íslandi hefir nærri aldrei
verið mælt1). Af heita vatninu mætti eflaust hafa mikil’not
t r
á ýmsan hátt, en litil er notkun þess á Islandi. A stöku
bæ spara hverir eldivið og eru hafðir til að sjóða og þvo i,
sumstaðar stifla menn hveralæki og búa til böð eða
sund-laugar, sumstaðar veita menn vatninu um kálgarða og
kartöflugarða og fá þar mikla uppskeru. í islenzkum hverum
liggur mikið vinnuafl fólgið.
Hverir og laugar á Islandi eru ekki bundnar við neina
sérstaka hæð yfir sævarmál, sumar eru uppi á öræfum, sumar
i flæðarmáli eða jafnvel i sjó. Hveravellir, eitt hið stærsta
hverasvæði, liggja 2097 fet yflr sævarmáli, laug á
Marteins-f ’
flæðu við Odáðahraun 2371Hitalaug við Ldáðahraun
2142’, Hitalaug við Torfajökul 2008’, volgrur við
Gæsa-vötn 2961 fet o. s. frv. Laugar á hálendinu sýnast
yfir-leitt vera á svipaðri hæð einsog uppsprettur fljóta, en
sjaldan ofar, þar eru aftur á móti sumstaðar
brenni-steinshverir, sem liggja miklu hærra, t. d. i Dyngjufjöllum
32<J0—4000 fet yfir sjó, i Kverkfjöllum 4500 fet o. s. frv.
Sumar laugar eru i flæðarmáli og sumar koma aðeins fram
með stórstraumsfjöru, einsog t. d. laug ein i skeri fyrir
r
vestan Hlið á Alftanesi, þó eru flestar slikar uppsprettur á
Breiðafirði, þar eru t. d. hverir i Drápskeri, sem heyrir
undir Hergilsey. og i Oddbjarnarskeri hverir og margar
laugar. Aðalfjöldi hvera og lauga er dreifður reglulítið um
land alt á ýmsri hæð, og mjög margir þeirra eru nærri
vötnum, lækjum og mýrum.
Hveravatn kemur eflaust mjög djúpt neðan að, og er
þvi eðlilegt, að það kemur helzt fram þar sem dýpstir og
mestir brestir eru i jörðu. Hverir og laugar eru nátengdir
brotflötum og sprungum jarðarskorpunnar og gefa
upp-sprettur þessar viða á Islandi bendingu um byggingu
lands-ins, sig jarðspildna og annað jarðrask, sem orðið hefur. A
Suðurlandi standa fjöldamörg hveraaugu á sprungum með
’) Sir John Stanley fann 1789, að Litli-Geysir hjá Reykjum í
Ölvesi gaus 2313 pottum af vatni á mínútu. Sbr. Lanclfræðissaga 111,
bls. 137.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>