Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Hverir á Vestfjörðura.
227
heitt, enn milli vatnsgusanna var hitinn aðeins 85°.
Hér-umbil 50 föðmum neðar taka við aðalhverirnir, þar eru
mikil mannvirki, siðan saltsuða var höfð hér á Reykjanesi,
á árunum 1773—1796. Hverirnir eru hlaðnir upp i
ferhyrn-inga og rennur vatnið milli pollanna, á einum stað hefur
þar haldist steinstokkur; gamlir múrsteinar i hverunum eru
búnir að fá kísilskorpu að utan. Gegnum hveraþyrpinguna
rennur hér og hvar mýravatn úr nágrenninu og frá þeim
öllum heitur lækur niður i sjó. Hitinn í hveraholunum er
mjög misjafn, i heitustu holunni var 1887 93° hifci, en
víð-ast var hitinn milli 80° og 90°. Beggja megin við
Isa-fjörð eru margar laugar, t. d. hjá Eyri, Laugabóli og
Naut-eyri, en fiestar eru þó hitalitlar1).
A Ströndum eru líka heitar uppsprettur á við og dreif,
sumstaðar i allstórum hópum. I Reykjarfirði við Geir-
ólfsgnúp eru laugar hjá Kirkjubóli sunnan við ósinn og
lika að norðanverðu (53°), þá eru allheitar laugar á Kross-
nesi (60—70°), og hverir á Reykjanesi við Gjögur,
fyrir sunnan Trékyllisvik. Suðaustur frá Reykjanesbæ eru
björg við sjóinn og fyrir utan þau er Laugavik, þar i fjör-
unni er gamall basaltgangur og fram með vesturhlið hans
bullar upp heita vatnið og er hitinn viðast 65—68°, mestur
69°, en nokkru utar, vestan við Akravik, i laugum, sem
fylgja sömu stefnu, er hitinn 73°; i bökkunum á köldum læk
t
kemur upp heitt vatn (6872°) úr sandinum. I dalnum upp
af Kaldbaksvik, 765 fet yfir sjó, heita Hveratungur, þar
er mestalt land hulið stórum sköflum jafnvel um hásumar,
en stórt hlið hefir bráðnað i skaflana, þar sem laugarnar
eru. Heita vatnið (72°) spýtist upp úr klöpp, úr gati, sem
ekki er viðara en flöskustútur; þaðan rennur lækur niður í
ána og blandast saman kalda vatnið úr sköflunum og heita
vatnið úr hverunum; nokkra faðma fyrir neðan hveraopið
var hitinn á yfirborði lækjarins 50°, en á botninum 40°;
neðar við lækinn eru tvö op með 70° heitu vatni. Fram
Nánar um laugar á Reykjanesi og við Isafjörð í Andvara XIV.
1888, bls. 69-74.
15*
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>