- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
228

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

220

Hverir og laugar. 228

með læknum er mesti gróður, við randirnar á fönnunum

kafgresi og fögur blóm innanum. Yið Bjarnarfjörð er

mikið af laugum, en allar eru þær hitalitlar. I Kaldrana-

nesi er dálitil laug niður við sjóinn (33°), i Asmundarnesi

er laug skamt fyrir vestan túnið (31 auk þess eru laugar

á Bakka, Svanshóli og Goðdal og mest á Klúku, þar er

laug gömul í móhellu, upphlaðin, skamt fyrir norðvestan

bæinn, og er hiti i henni 39x/2 utan við túnbarðið er önnur

laug upphlaðin, dálitið heitari (42x/20); þar er kálgarður hjá

lauginni og eru þeir sjaldgæfir svo norðarlega á Ströndum.
t

A Selströnd, norðan við Steingrimsfjörð, nærri Kleifum,

eru allmiklir jarðhitar. Nokkurn spöl fyrir utan Kleifar er

vik, sem heitir Reykjavik; þar við vikurbotninn að austan-

verðu, rétt i flæðarmáli, eru hverh’ fyrh’ neðan kletta, sem

heita Hverakleifar. Hverarnir hafa myndað tvo litla hjalla

við sjóinn úr samanbökuðu hverahrúðri og basaltmolum.

Ytri hverahjallinn er um 6 fet á hæð yfir sævarmál, um 70

álnir á lengd og 20 á breidd um miðjuna; vatnið streymir

niður af hjallanum i sjóinn og kemur mest upp um þrjú

göt, þó kemur lika dálitið vatn upp um smárifur; hitinn

var 1886 jafn i öllum holunum, 76° C. og virðist hann hafa
t

aukist, siðan Olafur Olavius kom þar 1777, þá var hitinn
i syðstu holunni 69° en hinar holurnar kaldari. Minni
hjall-inn er 12 föðmum innar, hann er um 30 álnir á lengd og
2—3 álnir á breidd, er sprunga eftir honum endilöngum og
streymir heita vatnið upp um suðurenda hennar, hitinn var
þar 1886 161/*0.

I Húnavatnssýslu eru nokkrar laugar á víð og dreif.
Austanmegin við Hrútafjörð er hver í mýri norðvestur af
bænum Reykir með 96^/a^hita, og er hann notaður til að
sjóða i; kringum hann er mikið af skeljabrotum, einkum
öðu, sem föst eru í gömlum hverahrúðri, svo liklega hefir
hverinn áður verið undir sjó. Hver þessi sýður misjafnt,
bullar stundum meira en stundum. Þar i nánd eru 4 augu
með nokkru mimii hita og laug niðri við sjó. eru

Reykir i Miðfirði, þar er heit laug (72°) fyrir neðan
bæinn, undir hinum neðra melhjalla, og lijá Skarði á

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0240.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free