Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Blágrýti. 259
súrefni og köfnunarefni), sem mjög hjálpa til þess að leysa
sundur bergtegundirnar, einkum kolasýran. Hve þétt sem
bergið sýnist vera, eru þó altaf einhverjar rifur, sem vatnið
kemst inn i, og í gegnum flest blágrýti getur rakinn oftast
hæglega komist; hinar hörðustu bergtegundir geta allar á
endanum ieyzt i sundur af áhrifum vatns og kolasýru, ef
timinn er nógu langur, en sundurliðun bergtegunda er afar-
margbreytileg. Endalok blágrýtisins eru vanalega, að það
breytist i rauðan ieir1) eftir að hafa gegnumgengið mörg
stig umbreytinganna, og þá hafa lika ýms efni borist burt
og sezt annarstaðar, eftir að þau voru losnuð úr hinum
t
fyrri samböndum. I blágrýtisfjöilum eru margar sprungur,
oftast upp úr, þvers i gegnum öll iög, sem fylst hafa af
gosgrjóti að neðan, og kalla menn það »ganga«; þeirra
mun brátt nánar getið. A einstöku stað eru i
blágrýtis-hömrum kaflar af móbergi og hraungjalli, oft með
sam-tvinnuðum gangbrotum ; það eru leifar af fornum gosvegum,
sem þegar i öndverðu hafa orðið undir hraunum þeim, sem
myndað hafa fjöllin. Hátt og lágt i blágrýtisfjöllum eru oft
stórgerð grágrýtislög milli basalt- og möndlusteinslaga;
lik-lega eru mörg þeirra innskotsiög. Efst i flestum
basalt-fjöllum er gráleitt blágrýti, sem klofnar i hellur; stundum
er það mjög svipað hinu yngra dóleriti og liggur stundum
beint undir þvi, svo örðugt er að greina þær myndanir
hverja frá annari.
Líparít. Bergtegund þessi, sem iika er köiluð rhyolith
eða kvartstrakyt2), tekur tiltöiulega yfir mjög lítið svæði af
landinu, en er þó auðkennileg vegna hins ijósa litar sins.
sem stingur mjög af við hin dökku blágrýtisfjöll. Engin
bergtegund á Isiandi hefir jafnmargbreytilegt útlit einsog
liparitið, gerðin og liturinn er mjög mismunandi og
fjalls-hliðar með lipariti hafa oft mjög skræpulega liti, eftir hinum
ýmsu afbrigðum þessarar bergtegundar. I lipariti eru aðal-
J) Kisilsúr leirjörö blönduð járnoxyd.
2) Eldri jarðfræðiugar, sem ferðast hafa um Island, kalla
berg-tegund þessa trakyt, en nú er það nafn haft á öðru grjóti, sem
inni-heldur minna af kisilsýru.
17*
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>