- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
268

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

268

Islenzkar bergtegunclir.

fiöllum hafa funclist jökuluröir og sumstaöar einstakir.
dreifðir og rispaðir jökulsteinar; sumstaðar eru þykk lög
af hnullungabergi (conglomerat), sem myndast hefir af
jökul-ám eða bergvatnskvislum, eða þá af brimi við ströndu.
Mjög viða í gömlu og nýju möbergi eru móhellumyndanir,
móbergsdust og eldfjallaaska, sem fokið hefir og lagst i lög
þar sem það staðnæmdist; innan um móhelluna eru
vind-núnir steinar, smáir og stórir, oft rispaðir likt og
jökul-steinar, þó rispun og fágun þeirra sé með annari gerð. I
þetta alt hefir svo blandast mikil gnótt af eldfjallaösku og
hraungjalli frá stöðugum eldgosum, og stundum hafa
jökul-hlaup gert mikinn usla, breytt eldri jarðlögum, fært til
stór björg og dreift jökulleir og jökulgrjóti um stór svæði
og jafnvel flutt gamlar jökulurðir langt frá
upprunastöðv-unum. Að myndun móbergslaganna hafa þannig unnið
eldgos, jöklar, ár og vindar á ýmsan hátt. Yiða skiftast
móbergslög á við grágrýtishraun og blágrýtishraun, og
sum-staðar eru innskotslög af blágrýti og lipariti, en af þeim er
þvi minna sem móbergið er yngra. Stöðugt bætist við
móbergsmyndanirnar af öskufalli nýrra gosa, þó það eigi
oft langt i land að askan og gjallið verði að föstu bergi
I móbergshéruðunum er urmull af gömlum eldfjallarústum
og eru sumar mjög stórfenglegar. Flest eða öll hin stærri
fjöll uppi á hálendi og undirfjöll jöklanna eru sundurgrafnar
rústir fornra eldfjalla, oft með grágrýtissteypu, sem liefir
verndað þau frá fullkominni eyðileggingu af ágangi iss og
vatns. Mjög viða eru i móberginu gamlar eldfjallaholur
eða eldrásir fullar af gjalli og ösku, stundum með
innskots-lögum af hrauni, en flest þar að lútandi má enn heita
órannsakað. Pað verður langt þangað til að búið er að
greiða úr allri þeirri jarðlagabendu sem móbergsfjöllin hafa
inni að halda, en þá f^^rst geta menn fullkomlega skynjað
myndunarsögu miðbiksins á íslandi. Þess má ennfremur
geta, að i blágrýtishéruðunum eru viða smáblettir af
mó-bergi og sumstaðar eru allþykk móbergs-, hnullunga- og
þussabergslög milli blágrýtislaga hátt og lágt i
basaltfjöll-um, svo stundum er mörg hundruð feta blágrýtisberg ofan

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0280.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free