Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
280 Surtarbrandur.
í leirnum hafa menn lika fundið mikið af diatómeum1),
þeir eru allir úr fersku vatni og sýna að skógarnir hafa
vaxið á staðnum á landi við mýrar og tjarnir, en margir
héldu áður að surtarbrandurinn væri myndaður af rekavið.
Surtarbrandur hefir fundist á 80 stöðum á Islandi, á 43
stöðum á Yestfjörðum, á 17 stöðum milli Gilsfjarðar og
Hvítár i Borgarfirði, á 15 stöðum á Austfjörðum, en aðeins
á 5 stöðum á Norðurlandi og hvergi á Suðurlandi, enda er
móbergið þar aðalbergtegundin.
G. G. Winkler.
119. mynd. Steingjörfingagilið hjá Húsavík í Steingrímsfirði.
a, b, e, blágrýti með ýmsri gerð; c, leirlög og steinbrandur með
surtar-brandi; d. hnúðar af leirjárnsteini með jurtaleifum.
Surtarbrandurinn er góður leiðarvísir til þess að sjá
aldurshlutföllin i blágrýtinu og landsig þau og brotfleti,
sem orðið hafa. Upprunalega hefir surtarbrandurinn
mynd-ast af skógum, sem uxu á nokkurnveginn flötu
blágrýtis-hálendi, svo hann ætti, ef hann væri óraskaður, að liggja
’) E. Ostrup: Diatoméerne i nogle islandske Surtarbrand-Lag.
(Meddelelser fra Dansk geologisk Forening III (1896), bls. 85-94; VI
(1900), bls. 23-30).
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>