- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
329

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Veðráttufar.

329

i febrúar i júli árið
Bronö 1°,4 12°,8 5°,2
Stykkishólmur -r- 2°, 7 9°,7 2°,8
Angmagsalik -í- 10°,8 5°,4 -f- 2°,6

Kuldinn á austurströndu Grænlands er þannig í
febrúar-mánuði 8 stigum meiri en á sama breiddarstigi á íslandi,
þó fjarlægðin sé aðeins 100 mílur, en aftur er aðeins 1°,3
heitara i Noregi, þó fjarlægðin sé meira en helmingi meiri1).

Pess hefir fyr verið getið, að mikil sævarhreyfing stefnir
frá Ameríku norðaustur Atlantshaf til Islands og
Noregs-stranda, og er sævarfall þetta einu nafni nefnt Golfstraumur,

r

og lykur hann um Island að mestu leyti; landið liggur
þannig i volgu vatni, sem strevmir sunnan að og kringum
það, en norðanstraumur, Pólstraumurinn mikli, kemur
norð-austan að landinu og glimir þar við Golfstrauminn.
Sævar-hitinn kringum ísland (I, bls. 25) er tiltölulega mjög mikill
og að meðaltali meiri en lofthitinn. Þetta hefir eðlilega
afarmikla þýðingu fyrir veðráttufar landsins, þvi vindarnir
bera hita úthafsins inn yfir landið og vindstaðan hefir þvi
mikla þýðingu af þvi vindarnir eru mismunandi að hita og
úrkomu eftir þvi hvaðan þeir koma. Vindarnir standa aftur
i sambandi við þau lágmörk loftþrýstingsins (minima), sem
myndast nærri íslandi. Meðalloftþrýstingin i norðurhluta
Atlantshafs er lægst fyrir suðvestan ísland og fyrir
norð-austan landið er líka svæði með mjög lágri loftþrýstingu.
Pessi lágmarkasvæði stýra að miklu leyti vindstöðu á
Is-landi. A Vestur- og Norðurlandi eru austrænir vindar
al-gengastir, sem stýrast af lágmarkasvæðinu fyrir suðvestan
landið, en við Austurland berst austanátt og vestanátt um
yfirráðin. Pó er þetta aðeins alment mælt og dregið af
meðaltali margra ára, en þegar hið daglega veðráttufar er
athugað nánar, sést það, að vindstaðan er mjög breytileg i
hinu einstaka. Það eru áhrif norrænna og suðrænna strauma

’) Julius Hann: Handbuch der Klimatologie, Stuttgart 1908, I,
bls. 181.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0341.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free