- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
381

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

I

Arferði.

381

öllum vötnum, svo hvorki veiddist lax né silungur og þaö
gekk í þrjú eða fjögur ár áður sóttin kom.1)

Arið 1500 er sagt að mikill grúi af fátæku fólki hafi
fallið á Islandi, og eins veturinn 1523,2) en annars hefir
ár-ferði á 16. öld yfirleitt verið þolanlegt, annálar teija þá 13
voncl ár og fellivetra, en 12 góð ár; 5 sinnum er getið um
mikil grasár, 1551, 1557, 1575, 1589 og 1596, þá var
óvana-lega mikið grassumar á Suðurlandi og segir Jón prestur
Egilsson: ^fá var sá enginn bær hér hjá oss, að þar sem
einn var til fyrirvinnu voru á 12 faðmar (heys), en um 20
ef tveir voru, þaðan af meira, 30 eða 40 ellegar 60«.3) Pá
komu stundum miklir hafísar og á þeim mikil gnótt sela.
A dögum herra Marteins biskups (1549—1558) snemma, segir
Jón Egilsson að hafi komið svo mikili liafís syðra, að hann
lá út í sjó meira en viku sjávar og tók langt út fyrir
Por-lákshafnarnes og var mikil seiveiði á honum, hann kom
fyrir vertiðarlok um sumarmál.4) 1564 var mikill hafis við
Island og voru teknir á honum ótal selir um allan
Norð-lendingafjórðung. Fór almenningur úr sveitunum út á
isana og báru á hestum selina lestum saman, drógu og
óku fram um bygðirnar, var þetta alment kallað selavorið
mikla.5)

Með 17. öld hófust mikil hallæri; veturinn 1601 var
kallaður »iurkur« og var aftaka harður og hin næstu ár á
eftir var mikið mannfall af sulti og sagt að 9000 manna
hafi dáið af harðrétti og sóttum á þrem árum.6) Um
byrj-im aldarinnar fór landinu mjög að hnigna og höfðu þessi ár
mikil áhrif á hugsunarhátt manna og framtakssemi;
skáld-skapur þeirra tima lysir eigi öðru en eymd og volæði, vili
og örvæntingu og hélst það langt fram eftir öidinni, enda

Safn til sögu íslands I, bls. 44.

2) Annálar Björns á Skarðsá I, bls. 72, 94.

3) Safn til sögu íslands I, bls. 117.

4) Safn til sögu íslands I, bls. 100.

5) Annálar Björns á Skarðsá I. bls. 228.

6) Annálar Björns á Skarðsá II, bls. 42—44; F. J. Hist. eccles. III.
bls. 353. Safn II, bls. 726.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0393.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free