- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
380

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

380

r

At-ferði.

r

fellir nokkur.1) A 14. öld geta annálar um árferði 44 ár;
eru vond ár og harðæri talin 23 sinnum, 12 ár góð og 9
meðalár. Liklegt er að þau ár, sem ekki eru talin, hafi.
verið meðalár og telst þá svo til að 4. eða 5. hvert ár á
öldinni hafi verið harðindaár. Stórsóttir gengu þá 11 eða
12 sinnum og voru sumar mannskæðar, þó litlar væru þær
í samanburði við hinar ógurlegu drepsóttir á 15. öld.

r

A 15. öld var þvi nær ekkert ritað um sagnfræði og
eftir að Lögmannsannáll hættir 1430 dettur i dúnalogn,
þögn og myrkur út öldina. Um árferði eru þvi litlar
skýrslur til frá þeirri öld. Drepsóttirnar eru aðaleinkenni
þeirrar aldar, þá gekk svarti dauði um landið 1402—1404;
1420 fór mikil sótt um allar sveitir og deyði það fólk flest
er var á sextugs aldri, en næsta vetur dó margt hraust fólk,
fátt eldra en á þrítugsaldri, og eigi yngra en 20 ára.2) 1426
kom krefðusótt og ýmsar kynjasóttir sem gengu um mestalt
landið. 1431 gekk bólan mikla og er mælt að hún hafi
drepið nærri 8 þúsundir manna; 1472 gekk aftur mikla bóla
og var manndauði mikill og 1493 klykti út með plágunni
seinni, sem var viðlika mannskæð einsog svarti dauði. 1405
var snjóavetur hinn mikli með miklum fjárfelli hrossa og
sauða á Suðurlandi. 1430 var vetur góður og ósnjóasamur
og vorið dæmalaust að veðurbliðu og grasvexti. Um seinni
hluta 15. aidar hafa víst verið mikil harðindi með köflum.
Hannes biskup Finnsson getur þess, að á 15. öld liafi
Knapp-staðir i Fljótum verið nokkra stund i eyði, og i tíð Stefáns
biskups hafði Hofskirkja í Vopnafirði ekkert kúgildi með
neinni jörð sinni og voru þær allar bygðar til litillar leigu
sakir harðinda og grasleysis.3) I Sigurðar-registri eru 1525
taldar jarðir Hólastóls og meðal annars sagt að Grimsstaðir
á Fjöllum og ýms kot þar á heiðunum séu i eyði og hafi
ekki verið bygð í 30 ár eða lengur. f*að er mælt að fyrir
pláguna seinni hafi verið óáran á allmörgu, tók þá veiði úr

>) ísl. ann., bls. 426.

2) ísl. ann., bls. 293.

3) Um mannfækkun af ballærum, bls. 63.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0392.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free