- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
464

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

464

Spendvr.

braut niður alla hjalla á Skaga utan að Kjötu, þvi það
fann i sumum matföng handa sér, þetta var um sumarmál«.
Ketill Ingimundarson í Kjötu vann björn þenna með tilstyrk
annara manna.x) 1610 kom hafis mikill fyrir sunnan og
selafengur mikill, þá var björn unninn i Herdisarvik af
Knúti nokkrum Hermannssyni, sem var hið mesta
vesal-menni.2) 1615 var harðindavetur með miklum hafisum.
»Bjarndýr gengu þá viða um land, en gerðu þó ei mein,
mörg voru unnin fyrir sunnan og austan og eitt var drepið
á Hólum i Hjaltadal«.3) 1648 var kallaður glerungsvetur
eða rolluvetur og voru hafisar miklir, þá gengu 14 birnir á
land á Norður-Ströndum um vorið og margir annarstaðar.4)
1657 var bjarndýr drepið i Svartárdal, »var komið inn i
fjár-húsið á Eiríksstöðum, hvitt að lit, stórt sem þrevætt naut
lítið, að liðnum fráfærum«.5) 1665, í vikunni fyrir
Jóns-messu, kom hafís fvrir vestan og norðan og komu á isnum
7 bjarndýr i Trékyllisvik.6) 1684 komu hafisar og á þeim
tvö bjarndýr á Norðurströndum.7) 1697 var mikill
frosta-og snjóavetur og segja annálar, að viða hafi orðið vart við
birni á isunum. 1701 kom um sumarmál bjarndýr á land i
Svarfaðardal með tveim húnum, var dýrið drepið, en
hún-arnir látnir lifa.8) 1731 bjó Jón Jónsson nokkur, kallaður
höfuðsmaður, á Oddsstöðum á Sléttu, »hann var mikill vexti
og gildlegur og áræðisfullur, var það i almæli að hann hefði
unnið 19 birni eða 20, en merkir menn bera það þó aftur,
þó gekk hann oft á isa og leitaði dýra«, segir Jón Espólín.9)
1745 voru hafísar miklir, þá komu 4 eða 5 bjarndýr á
ísn-um nyrðra, og voru 2 eða 3 unnin og i Skaftafellssýslu voru

r

Itarleg frásaga í Aunálum Björns á Skarðsá I, bls. 84—88.

2) Árb. Espólíns V, bls. 125.

3) Annálar Björns á Skarðsá II, bls. 74.

4) Árb. Espólíns VI, bls. 125.

5) Annálar Gunnlaugs lJorsteinssonar. Lbs. 158, 4°.

6) Annáll Péturs Einarssonar á Ballará. Hdrs. J. S. 235, 4°.

7) Annáll Magn. Magn. Safn IV, bls. 180.

8) Svarfaðardalsannáll. Lbs. 158, 4°.

9) Árb. Esp. IX, bls. 112.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0476.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free