Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Hvítabirnir.
465
þá 5 bjarndýr drepin um voriö.1) 1795 fær Helgi bóndi
Halldórsson frá Gunnólfsvik 5 dala verðlaun fyrir að hafa
unnið björn.2) A 19. öld komu birnir oft á land sem fyr.
flestir þegar hafísar voru mestir, og teljum vér nokkur dæmi
frá seinni hluta aldarinnar. 1873 rak i nóvembermánuði
hafishroða að Ströndum og með honum mörg bjarndýr,
voru 3 unnin i Trékyllisvik; eftir nýjár 1874 rak aftur að
mikinn is og voru með honum margir birnir. einn var
drepinn á Langanesi, en fleiri sáust, þrir sáust á Sléttu og
eitt bjarndýrið rak hausinn inn um baðstofuglugga i Rifi.
Rétt fyrir þorra sama ár voru tvö bjarndýr drepin i
Mjóa-firði eystra.3) 1879 voru isar miklir. þá sáust 14 bjarndýr
á Skaga nyrðra.4) Frosta- og isaveturinn mikla 1880—81
komu fleiri birnir en nokkur mundi til og komust þeir viða
langt upp i sveitir, en ekki gerðu þeir mein. Tvö bjarndýr
sáust uppi i Eyjafirði hjá Gullbrekku og stefndu til fjalls,
birna með tvö húna sást á Tjörnesi og siðar á Flateyjardal,
bjarndýr sást hjá Skarði i Laufássókn og annað milli
Látra-strandar og Hriseyjar, tveir birnir komu að Látrum við
Eyjafjörð og var annar skotinn. A Austfjörðum var
óvana-lega mikil umferð af bjarndýrum, sem fóru þar um allar
sveitir og langt upp i land og voru allmörg þeirra unnin,
i Loðmundarflrði, Seyðisfirði og Norðfirði eitt i hverjum
firði, tvö dýr voru drepin i Fáskrúðsfirði, eitt nærri
Djúpa-vogi og vóg skrokkurinn af þvi 430 pund, og enn eitt í
Nesjum við Hornafjörð, þar sáust fleiri birnir, sem gengu á
jökla og vissu menn ekki til að fyr hefðu sézt hvítabirnir
i þeim bygðarlögum. Sex bjarndýr sáust á Fljótsdalshéraði
og eitt uppi á Hrafnkelsdal.5) Arið 1892 komu hafisar að
Sléttu og Ströndum og af þeim gengu tvö bjarndýr á land
á Tjörnesi, tvö i Kaldbaksvik á Ströndum og eitt á Gjögri
r
J) Grímsstaðaannáll. Landl’ræðissaga II, bls. 262. Arb. Espólíns
X, bls. 5.
2) Lögþingisbók 1796, bls. 131.
3) Norðanfari XIQ, bls. 16, 57, 75.
*) Norðanfari XVIIT, bls. 4.
*) Norðanfari XX, bls. 32, 41, 44, 56, 63. Fróði II, bls. 131.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>