- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
479

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Hvalir.

479

Kampselar eða granselur (Phoca barbata) sést við
og við á Vestfjörðum á vetrum, sjaldan á Norðurlandi; hann
er einna stærstur allra norrænna sela, getur orðið 9 —lOfet
á lengd og gengur næst rostungi að stærð, þó hann só
mikið minni, hann er dökkur á lit og gamlir brimlar nærri
háralausir. Granselurinn hefir, sem nöfnin benda á, kamp
af löngum, hvítum veiðihárum, sem eru nærri eins digur
og bandprjónar; hann heldur sig mikið á hafis einsog
vöðuselur og lifir af fiskum, kröbbum, smokkíiskum og
skeldýrum, er lika heldur fátiður við Grænland.
Blöðru-selurinn (Cystophora cristata) er algengur sunnan til við
Grænland, hann hefir blöðru eða poka á hausnum, sem
hann blæs upp er hann reiðist, hann er mógrár á lit með
blettum og 6—9 fet á lengd; annars verður að geta þess,
að litur sela er mjög breytilegur eftir aldri og kynferði.
Blöðruselurinn lifir á þorski, lúðu og karfa og stundum á
smokkfiski; hann er meiri hafselur en aðrir selir, heldur
sig oftast á hafís i hópum langt frá landi og kæpir á hafís
úti i Grænlandshafi (Danmerkursundi); leitar snemma á
vor-in upp að ströndu Grænlands, hverfur svo i júní eða júli og
kemur snöggvast aftur i ágústmánuði.J) Til Islands kemur
blöðruselur helzt að Norðurlandi, á Húnafióa og Eyjafjörð
og hefir hann aukist þar á seinustu 20 árum, hann kemur
nokkuð seinna en vöðuselurinn og fer aftur um likt leyti;
hann sést lika alloft á Skjálfanda og stöku sinnum á
Isa-fjarðardjúpi og Jökulfjörðum; einn var skotinn á Vattarnesi
eystra fyrir aldamótin seinustu og 1776 segir Olavius að
einn hafi verið drepinn við ós Jökulsár á Brú. Kápurnar
af selum þessum eru við Eyjafjörð hafðar til hákarlabeitu.2)

r

Uti á hafisnum i Danmerkursundi drepa selfangarar oft
mikinn urmul blöðrusela; sumarið 1900 veiddu 5 skip þar
25 þúsundir af þessari selategund.

*) H. Winge: Grönlands Pattedyr, bls. 449.

2) 0. Olavii Oeconom. Rejse, bls. 86,514. Andvari XXVI, bls. 95;
XXIV, bls. 63.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0491.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free