Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
480
Spendvr.
Hvalir af ýmsum tegunclum, smáir og stórir, eru
al-gengir kringum Island.Pó er ekki gott að segja hverjir
eiginlega eiga þar heima, hvalir eru á sifeldri rás og fara
um mörg höf, það eru aðeins fáir þeirra, sem hafast lengi
við á sama svæði. Þekkingin á hvölunum er enn mjög i
molum og það er heldur ekki gott að átta sig á hinum
mörgu islenzku hvalanöfnum, þau hafa vist jafnan verið á
reiki, þvi menn hafa sem vonlegt var átt ilt með að þekkja
sundur hinar ýmsu tegundir, sem ekki sáust nema endur
og sinnum og eru þess utan oft i fijótu bragði hver annari
likar. Um hvali hefir skapast fjöldi af þjóðsögum á íslandi,
sjómenn voru hræddir við suma, stóð stuggur af þeim og
140. mynd. Delphinus delphis.
kölluðu illhveli. Hvalir skiftast sem kunnugt er i
tann-hvali og skiðishvali, tannhvalirnir eru minni og sumir
all-smáir, þeir halda sig oft í hópum, lifa mest á fiskum, sílum
og smokkfiski; skíðishvalirnir eru sumir afarstórir og
nær-ast mest á smádýrum af ýmsu tagi, sem þeir svolgra i sig
i stórum torfum. Af tannhvölunum eru höfrungarnir
smæst-ir, þeir eru lika kallaðir hnýðingar, hundfiskar, stöklar o. fl.,
en Islendingar gera sjaldan greinarmun hinna einstöku
teg-unda. Af höfrungum munu vera ýmsar tegundir við
strend-ur íslands, liklega fjórar2): Delphinus délphis, D. tursio, D.
albirostris og D. acutus. Þeir eru oftast 7—9 fet á lengd,
hinar stærri tegundir 12—16 fet. Höfrungar flækjast viða
’) Hinna eldri ritgjörða um íslenzka hvali er getið í
Landfræðis-sögu íslands HI, bls. 152 og IV, bls. 204 -207.
2) Adjunkt Bjami Scemundsson hefir gert mér þann greiða að
senda mér upptalning þeirra hvala, sem hann veit til að hafi sézt
við Island og er þeirri skrá hér f^dgt.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>