Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
486
Spendvr.
Menn héldu í þá daga meðal annars, að muldar
náhvals-tennur væri fyrirtaks meðal gegn eitri. A miðöldunum var
það almenn skoðun. að tennurnar væri horn af dýri einu
eða skrimsli, sem var kallað einhyrningur, en það
sannað-ist fyrst á 17. öld með óyggjandi rökum frá Islandi, að
tönnin var úr lival,1) náhveli höfðu þá einmitt rekið á
Norðurlandi með hafis 1639 og 1648. Kjöt náhvelis héldu
menn líka áður að væri baneitrað og var bannað að eta
147. mynd. Náhveli (Monodon monoceros).
það i fornum islenzkum lögum. Grænlendingar eta
ná-hvalskjöt og verður ekkert meint af. Ur tönnunum
smið-uðu menn áður biskupsbagla og aðra dýrgripi og líklega
hefir hinn silfurbúni hvaltannarlúðnr, er Ormur Sturluson
lögmaður gaf Friðriki konungi öðrum,2) verið úr
náhvals-tönn. Hér og hvar er þess getið i bókum að náhveli hafi
rekið á seinni timum, þó ekki oft. Arið 1800 að liðandi
jólum rak náhveli i Dýrafirði innarlega, var hvalurinn etinn
») Sbr. Landfræðissaga I, bls. 158-159; II, bls. 165-166.
2) Árb. Esp. IV, bls. 91.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>