- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
501

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Fuglar.

501

snjóuglur eru hér að staðaldri á vetrum á útkjálkum er

óvist. Margir selningar halda sig fram með ströndum ís-

lands á vetrum, en sumir fara úr landi; tjaldarnir safnast i

stóra hópa á haustin og leita sér fæðu á vetrum fram með

suðurströndu landsins og koma þangað að norðan. Af álft-

unum fara margar úr landi á haustin, einkum kvennfaglar

og ungar, en eldri karlfuglar dvelja vetrarlangt á fiakki

milli fjarða og vatna, sem ófrosin eru. Sumar andir, æðar-

fuglar, straumandir, húsandir, stokkandir og nokkrar háellur
t

dvelja á Islandi á vetrum; æðarfuglinn dregur sig þó oftast
nokkuð frá landi út á sjó, en leitar skjóls i fjörðum og
vík-um þegar illviðri ganga. Gulandir (Mergus merganser) eru
lika hér á landi á vetrum, en yngri fuglarnir munu þó ílestir
leita suður á bóginn. Flestir sjófuglar fiytja sig burt frá
landi á haustin, aðeins fáar tegundir eru hér að staðaldri á
vetrum, meðal þeirra má telja tvær skarfategundir og
fýl-unga, þeir halda sér oftast nærri landi á þeim árstima, bæði
nyrðra og syðra, súlur fara úr Grimsey, en haldast við á
vetrum við Vestmannaeyjar og fyrir sunnan land, haftirðlar,
sem aðeins verpa í Grímsey, sjást þar lika i nánd á vetrum;
hvitmáfar (Larus glaucus) eru lika töluvert algengir viða
við strendur Islands á vetrum og svartbakar á Suðurlandi.
Af sumum fuglategundum, sem alment fara á haustum, verða
stundum nokkrir einstaklingar eftir á vetrum, t. d. stelkar
og tildrur, kjóar, spóar og hrossagaukar, litla toppönd og
urtir.

Pað er eigi svo hægt að segja með fullri vissu hverjar
fuglategundir eru staðfuglar á Islandi að öllu leyti.
Eins-og vér höfum getið, fara sumir einstaklingar af nokkrum
tegundum, en aðrir verða eftir, þess utan koma fuglar hingað
á haustin, sem eiga norðlægari bústað, i Grænlandi og
öðr-um heimskautslöndum, og hafa hér vetrarsetu, en íslenzkir
fuglar af sömu tegund fara úr landi suður á við. Allmargir
farfuglar koma hér á vetrum bæði að sunnan og norðan,
sumir snöggva ferð, aðrir clvelja nokkurn tima. Vér gátum
þess fyr um snjóugluna, að það er ekki fullkomlega víst,
hvort hún á hér heima eða ekki, en margir einstaklingar

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0513.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free