Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
502
Fuglar.
af þeirri tegund koma hingað liklega frá Grænlandi á
vetr-nm; tvær aðrar uglutegundir koma lika stundum á sama
árstima (Asio otus og A. accipitrinus). Krákur (Corvus comix)
koma við og við á vetrum og Færeyjahrafnar (C. frugilegus)
eru algengir. Lapplands-snjótitlingur (Plectrophanes
lappo-nica) kemur alloft á vetrum og blesönd (Fulica atra), hún
kemur lika á sumrin og er jafnvel sagt að hún verpi hér
stöku sinnum; stari (Sturnus vulgaris) flækist hingað
stund-um haust og vetur og einstöku sinnum bókfinki (Fringilla
coelebs).
Meginþorri allra fuglategunda á Islandi eru farfuglar.
koma hingað aðeins til að verpa. Flestir farfuglar koma i
seinni hluta aprilmánaðar eða byrjun mai; þó er koma
þeirra nokkuð mismunandi eftir landshlutum og árferði.
Sumir sjófuglar koma mjög snemma, liklega af því þeir
eru hvort sem er á vakki um höfin nærri Islandi, t. d. álka,
langnefja, stuttnefja, ritur og teistur, með öðrum orðum
bjargfuglar. Sumir einstaklingar af þessum tegundum fara
þegar að koma upp að landinu i janúar og febrúar og i
stórhópum i marz; þessir fuglar geta þvi i raun réttri varla
talist með eiginlegum farfuglum. Um miðjan apríl koma
vanalegir vorfuglar: heiló, spóar, hrossagaukar, skógarþrestir
o. fl., smirlar snemma i sama mánuði; óðinshanar, þórshanar
og kríur koma vanalega ekki fyr en i maímánuði.
Megin-þorri farfugla fer aftur frá Islandi um mánaðamót
septem-ber og október, sumir nokkru fyr, sumir nokkru seinna.
Af söngfuglum (mariuerlu, steindepli og skógarþresti) koma
karlfuglar á undan kvennfuglum (segir Faber), en af öðrum
fuglum koma bæði kynin undir eins. Ungu fuglarnir, sem
fæddir eru sama ár, hópa sig oftast saman, sér i lagi, á
haustin og ferðast sér, en gömlu fuglarnir sér.
Allmargar tegundir farfugla koma til Islands án þess
að verpa og’ eru þó sumir þeirra nokkuð almennir gestir,
einsog t. d. vepjur, hegrar og svölur. Sumir eru aftur
flæk-ingar, sem hrekjast út úr leið af vindum eða villast i
þok-um; sumir koma við á Islandi á ferðum til varpstaða i
hinum nyrðri heimskautslöndum, einsog t. d. ýmsar gæsa-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>