Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Fuglar.
509
ströndu á haustin að leita sér að inaðki. Stelkur (Totanus
calidris) er algengur farfugl á Islandi. fáeinir verða þó
stundum eftir og hafa vetrarsetu á Suðurlandi; stelkarnir
eru oft við sjó um fartimann haust og vor, en verpa i
mjr-um uppi i landi, oftast i smáhópum. Jaðrakan (Limosa
me-lanura) er farfugl, á heima á Suðurlandsundirlendi í
Ar-ness- og Rangárvallasýslum, en hvergi annarstaðar á Islandi,
heldur sig helzt i forarfióum. Keldusvín (PudJus aquaticus)
er viða um land i mvrum, liklega þó algengast i
Eangár-vallasjslu, fugl þessi sést þó ekki svo oft, af því hann er
mjög leikinn i að hlaupa i felur. Egg undan keldusvinum
hafa fundist alt sumarið frá þvi i lok maimánaðar til þess
i fyrri hluta september;1) eggin eru 7—13, nokkuð misstór.
A vetrum dvelja allmörg keldusvin hér við laugar og læki,
en sum fara um Færeyjar til suðlægari landa. til
Suðurev-rópu og Norðurafriku. Sanderla (Calidris arenaria) kemur
við og við til Islands og verpur hér stöku sinnum. Hegri
(Ardea cinerea) er nokkuð algengur aðkomufugl i öllum
landshlutum nærri sjó; nátthegri (Botaurus steJJaris) náðist
i nóvembermánuði 1904 í Fljótshlíð,2) hefir annars aldrei
sézt á Islandi. Aflogakragi (Machetes pugnax), Ardetta
mi-nuta og Ibis faJcineJJus eru lika mjög sjaldgæfir vaðfuglar,
hafa aðeins sézt einu sinni.
SundfugJar eru algengastir og þjðingarmestir allra fugla
á Islandi. Af þeirri deild þekkist 61 tegund hér á landi,
þar af eru 13 tegundir staðfuglar, er dvelja á Islandi eða
við landið á vetrum. 27 tegundir farfugla og 21
aðkomu-fugl. Alftin (Cygnus musicus) verpir oftast i heiðavötnum
á smáhólmum; margar fara úr landi um lok
septembermán-aðar, einkum kvennfuglar og ungar, en karlfuglar eru allan
veturinn við sjó og vötn þar sem ekki leggur, lifa þá
mest-megnis á jurtafæðu, en á sumrum líka á skordyrum, ormum
og vatnabobbum. Sjö tegundir gæsa hafa sézt á Islandi, af
þeim eru 3 tegundir nokkuð algengir farfuglar, en 4 teg-
P. Nielsen.
2) Skýrsla náttúrufræðisfélagsÍDS 1905, bls. 23—24.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>