Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
510
Fuglar.
undir sjaldgæfar; yfirleitt eru allar islenzkar gæsir
aðkomu-fuglar, sem fiestir fara lengra norður, en staðnæmast þó
sumir hér og verpa. Helsingi (Anser leucopsis) verpur i
Austur-Grænlandi og kemur til Islands á ferðum sinum á
norðurleið eftir miðjan april og á suðurleið i byrjun
sept-embermánaðar; hvort helsingjar nokkurn tima verpa hér á
landi er óvíst. Samferða helsingjunum eru oft nokkrar
mar-gæsir (A. torqnatns), þær koma og fara um sama leyti. og
það er lika óvist, hvort þær verpa hér. frjár
grágæsateg-undir (Anser ferus, A. segetnm og A. albifrons) verpa hér og
hvar á Islandi, helzt i árhólmum og ármynnum; stuttnefjuð
gæs (A. brachyrh/nchus) kemur stundum á milliferðum og
snjógæs (A. hyperboreus), sem á heima austantil i
Norður-Ameriku i heimskautslöndum, hefir náðst hér einu sinni
(1896) i G-rindavík.
Af öndum þekkjast á Islandi með vissu 20 tegundir og
2 toppandir, af þeim eru 5 tegundir staðfuglar, 8 farfuglar
og 9 aðkomufuglar; 15 tegundir verpa hér. Andir halda sig
við ár og vötn sem kunnugt er og sérstaklega er Mývatn
frægt fyrir andavarpið, þar verpa flestar tegundir, sem
ann-ars verpa á Islandi, mest þó dúkönd, hávella og húsönd.
Hinar 5 tegundir anda, sem dvelja á Islancli eða við landið
vetrarlangt, eru: straumönd, liúsönd, stokkönd, æðarfugl og
gulönd. Straumönd (Anas histrionica) er algeng um alt land,
helzt við straumharðar ár og fljót og verpir þar oft á
hólm-um, á haustin fara straumandir með unga sína niður árnar
og halda sig á vetrum oftast í smáhópum fram með ströndu.
Húsönd (Glaucion islandicum) verpir mest við Mývatn og er
algengari nyrðra en syðra; margar húsandir dvelja hór á
vetrum og eru þá i hópum við sjó, einkum syðra, en
all-margar fara þó seint i nóvember og koma snemma aftur,
jafnvel seint á góu. Stokkanclir (Anas boschas) eru algengir
varpfuglar á Islandi, en þó oftast dreifðar, halda sig við
mýrar. vötn og læki; ílestar dvelja vetrarlangt við vötn og
síki og fljúga þá oft yfir miklar vegalengdir. Æðarfuglinn
(Somateria mollissima) er almennur varpfugl kringum
altis-land, verpur helzt á eyjum, stundum þó á landi, á nesjum
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>