Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
512
Fuglar.
aðrir fuglar eru á takmörkum vatnafugla og sjófugla að
lifnaðarhætti, þó þeir fremur haldi sér að landinu. Sefönd,
íiórgoði (Podiceps cornutus), verpur allviða við vötn,
eink-um þó við Mývatn, þær eru farfuglar og byggja syndandi
hreiður i grunnum víkum, sem þó oftast eru botnföst,
sam-riðin við jurtaflækjur; mæðurnar synda stundum með
ung-ana á bakinu. Onnur sefandartegund (P. jjriseigena) hefir
náðst þrisvar á Suðurlandi (i Keflavik 1885, á Skerjafirði
1906, í Ölfusi 1909). Lómar (Colymbus septemtrionalis) verpa
um alt land og eru algengir við fjallavötn og langt uppi á
heiðum. í*eir eru farfuglar, sem koma um miðjan april til
Suðurlands, nyrðra nokkuð seinna, en fara oftast ekki fyr
.en seint í október og fáeinir haldast við á vetrum fram með
ströndu. Heimbrimi (Colyrnbus glacialis), oftast kallaður brúsi
n^^rðra, eru lika farfuglar og verpa við heiðavötn og tjarnir;
önnur tegund (C. arcticus) hefir sézt stöku sinnum.
Af hinum eiginlegu sjófuglum þekkjast 25 tegundir við
Tsland, sumir þeirra eru ágætir flugfuglar, altaf á ferðinni
og fljúga hæglega yfir stór höf, aðrir klunnalega vaxnir,
þyngri til flugs, lifa mest á sjónum og stinga sér ágætlega.
Pessir sjófuglar búa við strendur Islands. Tvær tegundir
skarfa (Phalacrocorax carbo og Ph. graculus), þeir verpa
oft-ast í hópum á skerjum og stöpum nærri fuglabjörgum,
eink-um á Norður- og Vesturlandi; þeir dvelja hér á vetrum og
eins súlan (Sula bassana), hún verpir aðeins á þrem stöðum.
við Vestmannaeyjar (Súlnasker, Geldingur, Brandur), á Eldey
og Hafsúlustapa við Grimsey. Drúði (ProceUaria pelagica)
er aðkomufugl á Vestmannaeyjum, en önnur tegund (P.
Lea-cliii) verpur þar og hvergi annarstaðar við Island svo
kunn-ugt sé. Skrofa (Puffinus arcticus) verpir líka hvergi nema
á Vestmannaeyjum, helzt á Yztakletti, þó hún sjáist við og
við annarstaðar fram með ströndum; stóra skrofa (P.major)
er sjaldgæf." Skrofur eru mest á ferð á nóttunni. Fýlungi
(Fulmarus glacialis) er viða i fuglabjörgum, algengastur þó
i Vestmannaeyjum, lika i Mýrdal, sumstaðar þar i björgum
fjarri sjó, ennfremur i Látrabjargi, Grímsey og ýmsum
öðr-um björgum. Fýlunginn er staðfugl og heldur sig á vetrum
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>