- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
511

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Fuglar.

511

og eiðum og við árósa, einstöku sinnum i vatnahólmum,
aldrei þó langt frá sjó. Mest varp mun vera á Breiðafirði,
i Æðey á Isafjarðardjúpi, hjá Laxamyri við Skjálfanda, á
Melrakkasléttu, á Hólmum i Tteyðarfirði og viða
annarstað-ar er allmikið varp þar sem kringumstæður eru hentugar
fyrir fuglinn og alstaðar eru kringum landið dreifðir
varp-staðir nema frgm með suðurströndu. Æðarkongur (Som.
spectabilis), með einkennilegan kamb á nefinu, er
algeng-ur varpfugl á Grænlandi, en sést hér á landi ekki nema
stöku sinnum i varphólmum innan um almennan æðarfugl.

A. E. Nordenskiöld.

159. mynd. Hausar af æðarkong og æðarblika.

Stóra toppönd eða gulönd (Mergus merganser) verpur við
tjarnir og ár á láglendum og dölum, á vetrum eru þær í
hópum á sífeldu flakki til að leita sér fæðu. Algengir
far-fuglar af andakjmi eru: hávella (Anas glacialis), dúkönd (A.
marila) og litla toppönd (Mergus serrator), verpa við hin
stærri vötn; urt (Anas crecca) og rauðhöfða (A. peiielope),
verpa á við og dreif. helzt við mýrapolla á heiðum;
graf-önd (A. acuta), nokkuð algeng nærri sjó, í dölum og við
ármynni, hrat’nsönd (A. nigra) er töluvert algeng við vötn
á Norðurlandi, sérstaklega við Mvvatn og á
Arnarvatns-heiði. Fremur sjaldgæfir fuglar eru: litla gráönd (A.
stre-pera), taumönd (A. querqueduJa), þær verpa við Mývatn.
Sjaldgæfar andir, sem ekki verpa á Islandi svo kunnugt sé,
eru: Glaucion clangula, Anas leucophtalmos, Fuligula cristata
og F. ferina; Mareca americana hefir einu sinni fundist
verpandi á Norðurlandi. fá hafa ennfremur verið skotnar
brandgás (Anas tadorna) og riðönd (A. rutila). Allar
þess-ar andategundir halda sér á sumrum oftast við vötn og ár,
nema æðarfuglinn, sem leitar sér fæðu úr sjónum. Sumir

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0523.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free