Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
516
Fuglar.
fengu menn fyrst þekkingu um þenna fugl i Danmörku.
Ole Worm fékk geirfugl sendan frá Færeyjum og lfsir
honum,1) en P. Resenius (1625—1688), sem ritaði
Islands-lýsingu, sem enn er til i handriti, getur fuglsins fyrst á
Islandi og segir að hann sé algengur á eyjum kringum
landið. líesen getur geirfuglsins á þessa leið: »Geirfugl,
nærri vængjalaus, sést aldrei fijúga, hefir hvitan hring i
kringum augun, af honum finst mikill fjöldi á eyjum
ná-lægum Islandi, þar sýnir hann sig mjög óvinveittan
fiski-mönnum; geirfuglar gjöra fylkingu, ryðjast á fiskimenn er
þeir koma, fella þá og misþyrma
þeim liggjandi. A móti þessu er
ekkert annað ráð, en að drepa
einhverja af þeim, sem fremstir
eru i hópnum, þá snúa hinir á
flótta og má taka þá
fyrirhafn-arlitið«.2) Johan Anderson,
borg-meistari i Hamborg, reit 1746 bók
um Island,3) segir hann þar frá
mörgu, sumu sönnu og sumu röngu,
og getur hann þar um
geirfugl-inn meðal annars. Segir hann, að
geirfuglinn sé á Geirfuglaskerjum
fyrir utan Reykjanes, en sjáist þó
sjaldan, og viti það vanalega á
einhverja óhamingju þegar hann sést; hann liafi þannig
t. d. sézt fyrir dauða Friðriks fjórða. Hin danska útgáfa
af sömu bók bætir við: ^Pessi hjátrú um geirfuglinn
er ekki almenn, og hann sést oft af þeim, er fara svo
langt út á sjó til að fiska einsog klettar þeir liggja, þar
sem þessi fuglategund hefir aðsetur sitt«.4) Horrebow ritaði
Landfræðissaga II, bls. 171.
8) P. Eesen: Descriptio Islandiæ. Ny kgl. Samling, nr. 1087—
1089, Fol.
3) J. Anderson: Nacbrichten von Island, Grönland und der Strasse
Davis, Hamburg 1746. bls. 48.
4) J. Anderson: Efterretninger om Island, Kbhavn 1748. bls. 288.
A. E. Nordenskiöld.
164. mynd. Haftirðill
(Mergulus alle).
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>