- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
517

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Fuglar.

517

bók1) á móti Anderson, og rekur þar margt aftur, er
Ancler-son hafði mishermt; liann lýsir þar nákvæmlega
geirfuglin-um, og segir hann eigi mjög sjaldgæfan á skerjunum fyrir
utan nesið; segir hann jafnvel að menn sæki þangað farma
af geirfugli og eggjum. Eggert Olafsson2) ljsir Eldey og
Geirfuglaskerjum enn nákvæmar; segir hann, að menn fari
stundum, þegar gott er veður, út i Geirfuglasker, geti þó
eigi lent, en einn af hásetunum sé bundinn i reipi, og svo
stökkvi hann upp í skerið
til að ná fugli og eggjum,
og oft verði að draga hann
gegnum brimið út i
bát-inn aftur. Smátt og smátt
hættu menn þessum
ferð-um út i Geirfuglasker, af
þvi að þær voru svo
örð-ugar, og fuglinum fór að
fækka, þegar svo mikið var
tekið, og honum engrar
undankomu auðið. Aður
voru ferðir þessar mjög
arðsamar; er sagt. að hver
háseti hafi fengið
jafnmik-ið upp úr hverri ferð, eins
og árskaup bezta
vinnu-manns á Norðurlandi. A
18. öld var fjarskamikið af
fugli á Geirfuglaskeri. I handriti frá miðri 18. öld er
Geir-fuglaskeri lýst.3) Skerið var að ofan á stærð við
kýrfóðurs-völl. Það var lengst frá norðaustri til suðvesturs, og alt úr
hraunsteini; hallaðist það nokkuð frá vestri til austurs, en
var flatt að ofan. Svo mikið var þar af svartfugli, að alt

M N. Horrebow: Tilforladelige Efterretninger om Island 1752. bls.
174-176.

2) Eggert Ólafsson: Reise igjennem Island 1772, bls. 855—856.

s) K. Kaalund: Hist.-topogr. Beskrivelse af Island I, bls. 39—40.

165. mynd. Geirfugl (Alca
impennis).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0529.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free