- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
518

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

518

Fuglar.

skerið var þakið, og menn urðu að vaða egg og fugladrit
í kné. Af geirfugli var eigi mjög mikið; á hér um bil 1 16
hluta skersins var geirfugl næst lendingunni, þvi hærra
gátu þeir ekki komist. A 18. öld er sagt, að menn hafi fyrst
farið út i skerið 1732 og höfðu engir þá komið þar i 75 ár.
Snemma á 17. öld fóru menn þangað til aflafanga. Björn á
Skarðsá getur þess, að 1639 hafi 4 skip af Suðurnesjum farið
þangað, og fórust tvö þeirra. en hin komust af eftir mikla
hrakninga; og áður hefir þar vist verið fuglatekja um
lang-an aldur, þvi i Wiichins máldaga segir (1367) að kirkjan í
Kirkjuvogi eigi hálft Geirfuglasker og kirkjan á Kirkjubóli
fjórðung í Geirfuglaskeri.x) Helztir þeirra er fóru
fugla-ferðir i Geirfuglasker á 18. öld eru taldir Sveinbjörn
Egils-son (f. 1700) og Hannes Eriendsson (f. 1705) og síðar Hreiðar
Jónsson (f. 1719), sem lifði fram yfir aldamót og var blind-’
ur hin seinni ár, hann var formaður fyrir Kort Jónsson á
Kirkjubóli og er mælt að hann liafi farið þrjár ferðir hið
sarna sumar. Svo lögðust ferðir þessar að mestu af, þó
nokkrum sinnum væri farið á árunum 1784 til 1800.
Geir-fuglinum hafði þá mjög fækkað, en flækingar og smáhópar
komu við og við upp að landi. Einn geirfugl var drepinn
i Selvogi um aldamótin og á árunum 1808—10 náðust tveir
við Heiiisnýpu milli Skaga og Keflavikur. John Gilpin
vik-ingur rak smiðshöggið á eyðing fuglanna, hann lenti við
Geirfuglasker við marga menn 1808 og drápu þeir alt sem
þeir náðu i.2) Arið 1813 gengu nokkrir Færevingar upp á
skerið og drápu þeir rúmlega 20 fugla, en hinir fældust
burtu. 1821 fór fuglafræðingurinn Faber út að skerinu; sá
hann þar mikið af súlu og svartfugli, en engan geirfugl.
Ekki var geirfuglinn samt útdauður þá, þvi nálægt árinu
1830 voru teknir 27 geirfuglar við Reykjanes.
Geirfugla-sker sökk við eldgosið 1830 og hafa þá fuglarnir orðið að

r

Dipl. Isl. III, bls. 221. I Hestsannál er þess getiö, að frakkneskt
skip strandaði 1695 á Geirfuglaskeri, en skipshöfn bjargaðist á bátum
upp á Miðnes.

2) Ibis for October 1861.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0530.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free